Þegar allir hópar voru komnir með fullan poka af laufum fórum við að skoða tjarnirnar í Grasagarðinum og endurnar. Og þar varð leikurinn mjög fjölbreyttur og skemmtilegur. Sumir fóru að fleyta laufblöðum á tjörninni og horfðu á þau sigla, aðrir stikluðu á steinum eða hentu steinum í vatnið. Sumir fengu sér vatnssopa úr gosbrunninum á meðan aðrir veltu fyrir sér pípulögnunum í miklum rannsóknarleiðangri, þar sem einhverjum varð að orði að þeir hefðu komist að “ leyndarmálinu”.Getið þið ímyndað ykkur um hvernig er átt þegar talið berst að pípulögnum????
Mér dettur bara einn í hug og nafn hans byrjar á Kjartan!
Enda er ég mjög stoltur að hafa kennt honum eins mikið og ég veit um fráveitulagnir borgarinnar...er einnig til í að taka hann í framhaldsnámskeið.
SvaraEyðaNú, varst það þú???!!!
SvaraEyða