Tobbi er með þvílíkt splatter ímyndunarafl.
Þessa dagana er teiknimyndin Madagaskar voða vinsæl enda er hann forfallinn dýraáhugamaður. Getur endalaust leikið með dýrin sín. Og oftar en ekki er hann að leika senuna úr myndinni þegar ljónið bítur sebrahestinn í rassinn. Og senan er leikin með tilþrifum, ópum og allt!
Svo elskar hann að fara í bað. Í baði um daginn höfðu tveir litli fiskar úr baðdótinu breyst í hákarla og þessir tveir hákarlar voru að éta endurnar. Reglulega heyrðist úr baðinu: "Nei nei, hákarl, ekki éta mig. Jú ég ætla að éta þig. Kjamms kjamms. Ég er að drukkna. Hákarlinn er að éta mig".
Á maður að hafa áhyggjur eða... ???
föstudagur, desember 11, 2009
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli