miðvikudagur, janúar 28, 2009

teskeiðar og vínarbrauð

Kjartan er við matarborðið og biður pabba að rétta sér teskeið. Pabbinn réttir skreytta skeið í teskeiðarstærð.

- þetta er engin teskeið! segir ungi maðurinn höstugur.
- jújú, víst, reynir pabbinn að malda í móinn.
- nei, maður gerir ekkert te með svona skeið, var svarið. Málið þar með útrætt.

Síðan tekur Kjartan til við að tína rúsínurnar úr hrísgrjónagrautnum og ég skýt að þeim fróðleiksmola að rúsínur séu þurrkuð vínber. Útskýri svo að maður geti gert þrennt við vínber: Borða þau, þurrka þau til að búa til rúsínur, eða pressa þau til að gera vín úr safanum.

Þá segir Kjartan: Og þegar maður setur brauð í vínið fær maður vínarbrauð!!!

2 ummæli:

  1. Nafnlaus10:26 f.h.

    Hann er náttúrulega bara snillingur, hann Kjartan :)

    SvaraEyða
  2. Nafnlaus10:26 f.h.

    P.s. þetta er frá Lúx-genginu :)

    SvaraEyða