miðvikudagur, júlí 23, 2008

Laugavegurinn

Við erum tiltölulega nýkomin heim úr Laugavegsgöngu - göngunni miklu - þessari sem við höfum verið að æfa fyrir. Ég var búin að semja heljarinnar stórskemmtilegan pistil um ferðasöguna - í huganum - en hef síðan ekki haft innblástur í að pikka hann inn. Svo tókst mér á snilldarlegan hátt að þvo minniskortið með öllum myndunum sem ég tók fyrstu 3 dagana í ferðinni!!!! Hafði geymt minniskortið í buxunum mínum, ákvað að hneppti vasinn á göngubuxunum væri öruggasti staðurinn fyrir það svo það týndist ekki á fjöllum. Svo þrælöruggur að ég tékkaði ekki einu sinni í vasann áður en buxurnar rötuðu í þvottavélina. Ég er enn að syrgja myndirnar.

En ferðin var snilld! Góður hópur, skipulagið tókst brillant og við fengum sól sól og ekkert nema sól allan tímann. Það reyndar rigndi smá á okkur fyrstu tvo dagana, en í bæði skiptin ekki fyrr en við vorum komin í náttstað og við búin að tjalda. Gátum því haldið til í matartjaldinu okkar á meðan rigndi - og kom ekki að sök því þá var verið að elda og borða. Eftir matinn var svo iðulega stytt upp og komið fínasta veður. Svo brást ekki að maður vaknaði í þvílíkri brakandi blíðu að maður var að kafna úr hita í tjaldinu. Síðasti dagurinn var svo flottastur og við gengum inn í Þórsmörk í algjörri hitabylgju. Síðasta vaðið var mjög kærkomið til að kæla soðnar tær!

Ég komst að ýmsu á fjöllum.
  • Það er ekkert skrýtið við það að Laugavegurinn sé ein vinsælasta gönguleið landsins, þetta er ótrúlega falleg landssvæði og á þessum 4 dögum gengur maður í gegnum allskyns landslag, landið er alltaf að breytast - og alltaf jafn ótrúlega fallegt hvort sem það er gróið eða berangurslegt, kolbikasvart eða í öllum regnboganslitum.
  • Jökulár eru KALDAR.
  • Af hverju eru 99,9% þeirra sem ganga Laugaveginn "öfugt" útlendingar? Hver seldi þeim að það væri betra???
  • Af hverju er ennþá til fólk sem fer í margra daga gönguferðir á gallabuxum?
  • Kjötsúpa er góð.

Yndislegir dagar á fjöllum. Maður er mættur endurnærður í hversdagslífið aftur.

Á meðan við gengum af okkur fæturnar á miðhálendinu voru strákarnir í útilegu með ömmu og afa í Þjórsárdal. Voru fyrst einir í dekri með þeim gömlu, úti að leika, borða coco-puffs, fara í sund og hafa það gott. Tobbi átti víst móment við Hjálparfossa, stóð og benti á fossinn hrópandi "sjáðu, sjáðu". Vildi svo bara standa og henda steinum í vatnið. Kjartan hins vegar varð agndofa yfir Búrfellsvirkjun, þurfi ekki meira en spenna, rafmagnslínur og vitneskjuna um að þetta væri verksmiðja til að búa til rafmagn. Hefur varla talað um annað síðan.
Um helgina varð síðan útilegan að allsherjar stórfjölskylduútilegu og þeir bræður skemmtu sér víst konunglega að heilla frænkur og frændur upp úr skónum. Þeir eru greinilega fæddir útilegupollar og geta ekki beðið eftir þeirri næstu.

1 ummæli:

  1. Nafnlaus9:14 f.h.

    Oh hvað ég hefði viljað vera með ykkur þarna í þessari Laugavegsgöngu. Helv... vesen að missa af þessu, en ég treysti því að ég geti upplifað þetta óbeint í gegnum myndir og sögur fráþér, og að á næsta ári verði ég ekki fjarri góðu gamni þegar verður farið að skipuleggja næstu ferð :)

    SvaraEyða