Ég vildi bara láta ykkur vita, einlægu aðdáðendur drengjanna okkar, að það eru komnar nýjar myndir á myndasíðunni. Ég er loksins búin að vinna mig í gegnum myndahrúguna (einungis 1062 myndir teknar í apríl) og er búin að setja inn allt úrvalið af bestu myndunum frá mars og ætla mér að pota aprílmyndunum inn áður en ég þarf að hlaupa af stað í matarinnkaup og ýmsar reddingar.
Við erum nefnilega að fá gesti í kvöld, Steinunn og Árni eru stödd hér í bænum, en Steinunn var ein af skvísunum sem var með mér í Montpellier um árið. Þau ætla að kíkja í mat í kvöld og þegar ég nefndi það við Jóhönnu að kíkja líka þá voru þau Lúxararnir ekki lengi að ákveða sig, svo þau ætla að koma brunandi. Svo hér verður mini-Mont-hittingur í kvöld. Það á bara að grilla, skála í frussi og hafa það gaman.
Varðandi myndirnar, þá hef ég búið mér til síðu á flickr, en þangað fara bara artí-fartí myndirnar mínar, það sem mér þykir flott úr tilraunastarfsemi minni með myndavélina. Megið kíkja ef þið viljð en ég lofa engum myndum af strákunum (þótt þær læðist alveg með enda eru þeir uppáhalds-myndefnið).
Engin ummæli:
Skrifa ummæli