þriðjudagur, mars 27, 2007

Sunnudagar til sælu

Helgin okkar var með rólegra móti, enda Tobbalingur lasinn og mamman slöpp. Því bar lítið til tíðinda og lítið brallað.


Reyndar var Stebba "frænka" í heimsókn hér í lok vikunnar, var á ráðstefnu hjá Evrópubandalaginu um vatn og gisti hjá okkur. Á föstudagskvöldið tókum við því okkur til og elduðum gott handa henni að borða, svona síðasta kvöldið á Hótel Kelle. Við notuðum hana eiginlega sem afsökun fyrir því að dusta af fondue-pottinum og göldruðum upp eðal fondue, sem við sátum yfir fram eftir kvöldi. Í desert var svo ís frá Häagen-Dazs, sem Stebba kom með færandi hendi eftir stutta bæjarferð.


Helgin leið svo bara með rólegra móti. Á sunnudaginn fór Kjartan eins og venjulega í gymið og skemmti sér vel við að príla, hoppa og fara kollhnísa. Þegar við komum aftur heim kláruðum við Kjartan að setja saman kökuna sem bökuð hafði verið deginum áður og fengum við okkur girnilega súkkulaði-appelsínuköku í kaffitímanum. Veitti ekki af að gleðja mannskapinn. Svo var leikið úti í góða veðrinu og almennt dundað sér. Við foreldrarnir settum síðan drengina í rúmið og áttum rólegheita rómantískan dinner bara tvö ein. Hrafnkell kokkaði steik, rauðvínssósu og fransk kartöflusalat, og með þessu drukkum við Côte-Rôtie frá Guigal. Vínið var reyndar ekki eins gott og steikin... en kvöldið var ljúft...

1 ummæli:

  1. Nafnlaus8:44 f.h.

    Gaman að fá smá fréttir af ykkur og greinilega sama góða veðrið í Brussel og hér í Lúx.
    Vona að Tobbi verði fljótur að losna við bronkítisið og að læknirinn kreisti hann ekki um of.
    Kv, Lúx-frúin

    SvaraEyða