fimmtudagur, janúar 18, 2007

Góður gestur og óvæntur skyldleiki

Við fengum óvæntan en góðan gest í vikunni. Stebba vinkona úr landafræðinni er búin að koma sér í vinnuhóp á vegum Framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins og kom á fund út af því í vikunni. Mun þetta vera fyrsta skiptið af fleirum svo hún verður reglulegur gestur hér í borginni. Við hýstum hana þessa 2 daga sem hún var í Brusslu og gáfum henni að sjálfsögðu eitthvað gott að borða. Ekki var það mikið meira sem við komumst yfir að gera að þessu sinni, enda kom hún seinnipart á þriðjudaginn, var á fundi allan miðvikudaginn og fór svo snemma í morgun. En við náðum að spjalla heilmikið, um barnauppeldi, pólítík, umhverfismál og fleira.

Í gær höfðum við svo góðan mat, djúsí steik, kartöflusalat og gott rauðvín með (Vosne-Romanée 2003). Yfir steikinni kom svo í ljós að við vinkonurnar höfum gifst inn í sömu ættina, því þeir Hrafnkell og Snorri maðurinn hennar eru bara náfrændur... og synir okkar því frændur! Það var sko mikið hlegið að þessu í gær, ótrúlegt hvað Ísland er lítið!

Af öðru er mest lítið að frétta. Við Kjartan og Hrafnkell höfum eitthvað verið að lasaruast í vikunni, fengum öll kvef og kverkaskít. Kjartan fór verst úti, hann var orðinn lasinn í gær með 38,5 og frekar slappur, var mjög lítill og skælinn í gærkvöldi. Hann fór því ekki í skólann í dag. En hann er greinilega búinn að ná sér aftur því það hefur ekkert stoppað hann frá hoppi og skoppi í dag. Hitinn er líka farinn svo litlir guttar fara aftur í skólann á morgun.

3 ummæli:

  1. Fólk gæti farið að halda að við gerðum ekkert annað en að éta steikur og sötra búrgundarvín...:)

    SvaraEyða
  2. Nafnlaus10:51 f.h.

    Já, ég stóð algjörlega á þeirri meiningu ;)
    Látið ykkur annars batna öll!
    Kveðja,
    Helga Hrönn

    SvaraEyða
  3. Að sjálfsögðu gerum við ekkert annað en að borða steikur og sötra búrgúndarvín ;-)

    SvaraEyða