þriðjudagur, september 20, 2005

Undur og frímerki!

Ætli það verði eitthvað úr þessu í þetta sinn???

Ég veit ekki hvað oft það er búið að taka skóflustungu af þessu blessaða íþróttahúsi MH! Þegar ég var í MH vorum við neydd til að skrölta yfir í íþróttahús Vals hvernig sem viðraði til að hlaupa þar um eins og vitleysingar. Þegar ríkið hætti svo að borga fyrir það vorum við send út að hlaupa, synda, í eróbikk, eða vorum dansandi upp á sal. Það var svo sem ekki það leiðinlegasta...
Ég man að við lögðum það til að það ætti bara að senda nemendurna út að moka í leikfimitímum, þá þyrfti amk ekki að borga fyrir að grafa grunninn fyrir blessaða íþróttahúsið!!!!

Engin ummæli:

Skrifa ummæli