þriðjudagur, ágúst 28, 2007

Brandarinn í allri sinni dýrð

Kjartan æfði sig og æfði í allan gærdag til að geta sagt pabba sínum brandara þegar hann kæmi heim. Og það tókst! Hann lærði allan brandarann utan að. Sumir hlutir skoluðust að vísu aðeins til, að sjálfsögðu er það trukkur sem keyrir yfir tómatinn í útgáfu Kjartans! Tobba finnst brandarinn alltaf jafn fyndinn og hlær hátt. Hinum sem hlæja ekki eins mikið er skipað að hlæja meira í hvert sinn sem brandarinn er sagður. Við foreldrarnir skorum frekar lágt á húmor-mælikvarða Kjartans.

mánudagur, ágúst 27, 2007

Brandari

Kjartan hefur frá því í sumarfríinu á Íslandi minnst á það að hann ætli að segja brandara, eflaust eitthvað sem amma og afi, frændur eða frænkur á Íslandi hafa verið að segja við hann.
En alltaf þegar ég svaraði: "segðu mér brandara" þá kom ekkert svar. Svo ég ákvað að bæta úr þessu og kenndi drengnum þann klassíska brandara um tómatana tvo sem eru að labba yfir götu. Nema hvað, hann kann ekki að segja allan brandarann sjálfur, bara lokalínuna: "Oj bara, tómatsósa".

Og núna fór hann inn til Tobba til að segja honum brandara, stendur við rúmið hans og endurtekur aftur og aftur: "Oj bara tómatsósa!!!" Og Tobbi skellihlær í hvert og eitt einasta sinn!!!!

Bómullarbrúðkaup

Fyrir að verða 2 árum síðan stóðum við í þessu - einn skemmtilegasti dagur lífs míns!

Í dag höldum við því upp á 2ja ára brúðkaupsafmæli - eða bómullarbrúðkaup. Ætlunin var að halda út að borða í kvöld og skála fyrir árunum tveim, en sökum barnapíuhallæris hafa út að borða hátíðarhöld færst fram á fimmtudag. Þess í stað verður kokkað pasta à la sorrentina (í stíl við brúðkaupsferðina).

Tekið er við hamingjuóskum í allan dag!

föstudagur, ágúst 24, 2007

10.000


Fyrir ári síðan, nánar tiltekið þann 25. júlí 2006, fékk ég (og við) nýja myndavél.





Ári síðar, eða þann 30. júlí 2007 vorum við búin að taka 10 þúsund myndir á vélina og teljarinn því byrjaður aftur frá byrjun! myndin sem fylgir er sú 10þúsundasta, af Tobba í fanginu hjá langömmu.




10 þúsund myndir á einu ári, það er þokkalegt!!!



Síðan hafa BARA bæst við 750 myndir! Það er kannski ekkert skrýtið að það taki mann langan tíma að sortera sig í gengum myndasúpuna og ákveða hvað fari á netið.

þriðjudagur, ágúst 21, 2007

Tómatar

Á þessu heimili hefur frasinn "seint sýður í vöktuðum potti" fengið yfirfærða merkingu. Í vor settum við niður tómatplöntur sem Helga Ferd vinkona okkar færði okkur, 2 kirsuberjatómatplöntur og 2 plómutómataplöntur. Síðan þær fóru í mold höfum við bara verið að bíða... og taka myndir af þeim!

Þegar við komum heim frá Íslandi var eitthvað af kirsuberjatómötunum orðnir rauðir svo við smökkuðum þá. Þvílíkt lostlæti!! Dísætir og hrikalega góðir. Svo nú sitjum við bara og bíðum eftir fleirum...

Og við bíðum spennt hvort plómutómatarnir fari nú ekki að roðna þrátt fyrir sólarleysið í Brussel. Einn er nú aðeins farinn að taka lit eins og sjá má á myndinni svo ég örvænti ekki - amk ekki ennþá!!!

Nema hvað, "seint roðna vaktaðir tómatar"!!!!

mánudagur, ágúst 20, 2007

Klipping

Guttarnir á heimilinu voru orðnir frekar loðnir eftir sumarið. Þeir voru reyndar orðnir loðnir fyrir Íslandsferðina en við ákváðum að gera ekkert í málunum því þeim veitti eflaust ekki af hárinu til einangrunar norður á Ströndum. En þegar heim var komin var algjörlega kominn tími á úrbætur.



Á laugardaginn var því sett upp klippistofa úti í garði og báðir guttarnir snoðaðir.


NB! Á þessari mynd er Kjartan að brosa sérstaklega til ömmu sinnar.

Lac de Genval og fiskur í salsa verde

Miðvikudagurinn var frídagur hér í Belgíu - held það sé sá dagur sem kallast Boðunardagur Maríu, allaveganna eru kaþólikkarnir að hylla Maríu Mey þennan dag - og í tilefni af því að Hrafnkell þurfti ekki í vinnuna höfðum við það náðugt heima en fórum svo í smá leiðangur. Ókum til Genval og röltum okkur í kringum vatnið þar. Strákarnir skemmtu sér konunglega, Kjartan við að henda öllu lauslegu út í vatnið, hvort sem það voru steinar eða spýtur, og Þorbjörn við að fylgjast með aðförum bróður síns. Það skondna var að í hvert sinn sem Kjartan fór að henda í vatnið komu endurnar á mikilli siglingu, greinilega í von um æti. En þær hefðu betur haft hjálma á hausnum!!!!
Miðja vegu settumst við niður og fengum okkur hressingu en ákváðum svo bara að halda áfram allan hringinn, vatnið er svo lítið!

Hress og endurnærð komum við svo heim og dunduðum okkur við að grilla fisk, sem við svo borðuðum með salsa verde og drukkum með Sancerre-vín frá Mellot vini okkar. Ljúfur endir á deginum.

Fiskur í salsa verde er algjör snilldaruppskrift, einföld og góð - og meinholl!!! Ég fékk hana fyrst frá Helgu Hrönn vinkonu minni, en þau Grímur höfðu fyrst fengið þennan rétt á veitingastað í Víetnam (eða var það Kambódíu).

Þið takið bara góðan fisk - ég hef notað bæði þorsk og rauðsprettu - penslið hann með safa úr 1/2 sítrónu og svo ólífuolíu, saltið og piprið. Grillið svo.

Síðan er búið til salsa verde:

  • 1 bolli (uþb. 2 dl) ferskar kryddjurtir eins og basil, mynta, marjoram (oregano) og timian, saxaðar
  • 2 msk capers, saxað
  • 1 hvítlauksrif, smátt saxað
  • 4 msk extra virgin ólífuolía
  • 2 msk sherry vínedik
  • salt og pipar

Blandið saman kryddjurtunum, capersinu, hvítlauknum, ólífuolíunni og edikinu í skál. Kryddið með salti og pipar og kælið.

Fræhreinsið 2 tómata og skerið í teninga.

Saxið graslauk eða vorlauk.

Skellið fiskisteik á hvern disk, setjið gott lag af Salsa Verde yfir og stráið loks tómatteningum og vorlauk eða graslauk yfir. Berið fram og njótið. Algjör snilld!!!!

sunnudagur, ágúst 19, 2007

Við erum ekkert hætt að blogga

Eins og titillinn ber með sér er ég bara að láta vita að við erum ekkert hætt í blogginu, bara smá pása sökum tæknilegra vandamála. Og þegar dyggir aðdáðendur eru farnir að kvarta yfir skorti á bloggfærslum er líklega kominn tími á að bæta úr því.

ATH! Það er líka tekið við athugasemdum á blogginu :-D



Við erum komin aftur heim í heiðardalinn eftir góða Íslandsdvöl, 2 vikur á Klakanum. Þar bar helst til tíðinda 6 daga Hornstrandaferð þar sem Tobbi fór að labba með stuðningi og Kjartan leit á Hlöðuvíkina sem "garðinn sinn"! Þeir bræður fóru í fyrstu löngu siglinguna og Kjartan meig í saltan sjó. Kjartan fór líka og veiddi silung með afa og foreldrarnir komust í 8 tíma göngu á Hælavíkurbjarg.





Í Reykjavíkinni var líka ýmislegt brallað. Þeir bræður fóru á róló með ömmu, og léku tímunum saman út í garði, Kjartan og amma Sía fóru í fjöruferðir og foreldrarnir fengu smá barnlausan tíma, hittu vini, fóru í matarboð og mættu í eitt glæsilegt brúðkaup hjá Lúxurunum.





Að vanda var Íslandsdvölin alltof stutt og því miður gafst ekki tími til að hitta alla sem maður vildi eða komast yfir allt á "to-do" listanum. En þetta verður svo sem ekki í síðasta sinn sem við komum til Íslands.

mánudagur, júlí 30, 2007

Þorbjörn 10 mánaða

Þorbjörn er orðinn 10 mánaða!!!

Á 10 mánaða afmælinu eru tennurnar enn bara 6 og drengurinn brosir sem aldrei fyrr. Hann er farinn að skríða út um öll gólf og kemst ótrúlega hratt yfir með sínu hermannaskriði. Hann fer að vísu upp á 4 fætur, en hreyfist ekkert úr stað. Svo fer hann aftur niður á magann og sprettir af stað!!!

Hann nagar allt sem fyrir honum er og elskar að leika sér með bíla eða bolta. Hann getur setið tímunum saman og velt dótinu sínu fyrir sér, snúið hjólunum á bílunum eða það sem er langskemmtilegast, snúa hjólinu á kerrunni sinni.

Stóri bróðir er sem fyrr vinsælasta skemmtiefnið og Tobbi hlær mjög innilega að öllum uppátækjum bróður síns, alveg þar til honum ofbýður eða stóri bróðir er farinn að meiða hann, þá er hágrátið. Hann er líka farinn að verja sig, háskælir ef stóri bróðir tekur af honum skemmtilega dótið!


laugardagur, júlí 28, 2007

Pakkað á ný

Þá er millivikunni okkar að ljúka, þ.e. vikunni á milli sumarfría. Við erum búin að vera heima í viku, Hrafnkell í vinnunni og við strákarnir heima við. Og það er alveg merkilegt að þessi vika hefur einhvern vegin farið í ekki neitt. Við höfum tekið upp úr töskunum, þvegið þvotta og leikið okkur. Einn daginn tókum við reyndar á móti gestum, en restin af ræbbblunum (Helga Hrönn, Grímur og Freyr) mætti í bæinn eftir nokkra daga dvöl í Búrgúndí. En allt sem ég ætlaði að gera þessa vikuna hefur einhvern vegin ekki gerst... enda gefst lítill auka tími þegar maður er með tvo litla gaura til að hugsa um heimavið.


Á miðvikudaginn fórum við á sjórængingjaróló í ljúfu veðri og mamman gat aðeins shutterböggast á meðan Kjartan ærslaðist á róló og Tobbi undi sér vel á teppinu (eða í grasinu).


En nú er pakkað á ný, því haldið verður á íslenskar slóðir í fyrramálið. Við eigum flug til Köben kl. 11.25 og svo annað áfram til Íslands 65 mín seinna. Svo krossið fingur fyrir okkur því á morgun um tólf-leytið að staðartíma verður fjölskyldan á harðahlaupum um ganga Kastrup. Lending er svo áætluð á Klakanum um 3-leytið.


Ef þið viljið heyra í okkur verðum við í Efstasundinu og með gömlu íslensku gemsanúmerin. Reyndar verðum við utan þjónustusvæðis milli 2. og 7. ágúst en þá er ferðinni heitið norður í Hlöðuvík á Hornströndum. Þar á að kynna litlu gaurunum fyrir ættaróðalinu, viðra göngufæturna og halda upp á þrítugsafmæli Halla bróður.

miðvikudagur, júlí 25, 2007

Róna(r)ferð Ræbbbla

Þá erum við komin heim úr 2ja vikna fríi í Rónardalnum, en Ræbbblar eyddu þar ljúfum dögum í eðalvillu einni í sveitinni nálægt Tain l'Hermitage. Innan um sólblóm, apríkósutré og vínvið lágum við í leti, sóluðum okkur, spásseruðum og átum á okkur gat.


Húsið sem við leigðum var stórt og rúmgott og nóg pláss fyrir 7 ræbbbla af öllum stærðum og gerðum.
Í kringum húsið var stór og góður garður svo það var nóg pláss fyrir Kjartan gorm til að gormast úti. Þar var líka matjurtagarður og við máttum nýtta okkur hann að vild. Tíndum tómata í salat og umsjónarmenn hússins höfðu skilið eftir handa okkur salat, kúrbít og kartöflur úr garðinum. Úti í garði var líka apríkósutré og við gjörsamlega hreinsuðum allar apríkósur af því og gæddum okkur á. Síðustu dagana þurftum við að leita á náðir bændanna í sveitinni og kaupa af þeim apríkósur til að uppfylla þörfina.

Við húsið var líka sundlaug og var Kjartan óþreytandi að fá að sulla í henni. Hún var óupphituð svo hann var lítið tilbúinn til að fara alveg ofan í, en alveg til í að sitja á bakkanum og busla af krafti.


Húsið og sveitin voru svo notaleg að við vorum ekkert að eyða tímanum í of mikið af skoðunarferðum. Fórum í einhverjar styttri ferðir, röltum um Tain l'Hermitage, heimsóttum Valrhona búðina og skoðuðum kapelluna frægu á Hermitage hæðinni. Við líka keyrðum um sveitirnar í kring, m.a. kíktum á vínsvæðin í nágrenninu. Einn daginn keyrðum við upp í Vercors fjöllin (næstum því Alpana) en þar var ótrúlegt útsýni, og magnaðir klettar, gil og gljúfur. Við skoðuðum Palais Idéal, en þann "kastala" hafði póstur úr "sveitinni okkar" föndra við í áratugi og mynnir "listaverkið" hans mest á Anghor Wat. Einn dag fórum við líka með Kjartan í lestargarð, þar sem keyrðu um litlar módellestir innan um minature-sveitir og það þótti litla lestaráhugamanninum mikið ævintýri. Tvisvar fórum við svo í lengri leiðangra, einn daginn fórum við til Lyon að hitta Jónu Dóru, Ferenc, Theresu og Sigrúnu Ingu. Spókuðum okkur fyrst í bænum en komum svo í mat til JD og Ference og höfðum það notalegt með þeim. Og einn daginn skelltum við okkur til Suður-Rón, heimsóttum nokkur þorp í Vaucluse og önduðum að okkur lavender-lyktinni; Séguret sem á að vera eitt af 50 fallegustu þorpunum í Frakklandi og svo víngerðarbæina Gigondas og Chateauneuf-du-Pape.

Þá komumst við líka í smá verslunarferðir. Við skvísurnar fórum bæði í fatakaup til Lyon og í skólei'angur til Romans-sur-Isère, en sá bær (sem var btw 10 mín frá okkur) er frægur fyrir skóframleiðslu og þar er sko nóg af verksmiðjuútsölum!!! Strákarnir fengu svo að komast í vínsmakk og víninnkaup.


Fríið var bara ósköp ljúft og notalegt og við vorum heppin með veður. Sem var ágætis tilbreyting eftir grámyglutíð í Belgíu. Mættum á svæðið í súperveðri, en fengum svo nokkra rigningardaga í fyrri vikunni. En síðan hóf sólin að skína en með fylgdi hinn frægi mistral-vindur. Við reyndar uppgötvuðum að hann er ekki alslæmur því um leið og vindurinn hætti að blása varð hrikalega heitt, suma dagana fór hitastigið í 38°. En þá var bara chillað í skugganum....


Og ræbbblarnir gleymdu sko ekki að ræbbblast. Við vorum dugleg að kokka okkur góðan mat og drekka góð vín með. Það þurfti að sjálfsögðu að smakka vínin úr sveitinn til að sjá hvort við ættum að taka með okkur einhverjar flöskur. Og eitt kvöldið fengum við umsjónarmenn hússins til að koma og passa alla strákasúpuna á meðan við fórum út að borða á Les Cèdres, 2ja stjörnu Michelin-staðinn sem við uppgötvuðum í næsta þorpi. Og það var sko kúlínarísk upplifun, hápunktur fyrir alla ræbbbla. Mæli með honum ef þið eruð í sveitinni.

Ferðalagið var alveg yndislegt og vel heppnað í alla staði. Mann langar bara aftur....
Eftir því sem tími gefst til er ætlunin að blogga minni pistla um margt af því skemmtilega sem við sáum og gerðum, og reyna að pota inn myndum á netið, en þær eru ansi margar!!!

mánudagur, júlí 23, 2007

Enn fleiri tennur

Tveim dögum eftir að síðasta tannafærsla var birt bættust 2 tennur í efri góm Þorbjörns, svo drengurinn var orðinn 6-tenntur fyrir fríið!!!

Og í fríinu tók stráksi sig til og hóf að skríða. Svo það er ljóst að við þurfum að hefja barnavarnir í húsinu, grafa hliðin fyrir stigana ofan af háalofti og forða öllu sem gæti verið viðkvæmt fyrir nagi.

þriðjudagur, júlí 03, 2007

Myndir myndir myndir!!!

Viðvörun, viðvörun!!! Of mikið af myndum!!!

Ég er búin að sitja við síðustu daga og sortera myndir frá maí og júní og setja inn á mynda síðuna. Að vísu enginn myndatexti en amk nýjar myndir!!

Kemur sér stundum vel að hanga heima yfir litlum lasarusi!

Tobbi tönn

Tobbi er kominn með 4 tennur!!! Framtönn nr. 2 er mætt á svæðið... og það glittir í 2 í viðbót svo það er ekkert lát á klæjandi gómum.

Tobbi þrítönn hefur því verið uppfærður í Tobba fjórtönn!!

mánudagur, júlí 02, 2007

Viðgerðir á sunnudegi

Kjartan tók eftir því í gærmorgun að ljósið í stofunni var farið að hanga óvenjulega mikið niður og benti foreldrum sínum á að það þyrfti að laga ljósið. Fyrst skildum við nú ekkert í þessu tali barnsins en þegar farið var að athuga málið kom í ljós að annar múrtappinn sem hélt ljósinu í loftinu var hreinlega dottinn úr og því þörf á viðgerð.

Við dæstum nú í fyrstu og óskuðum þess að afinn væri mættur á svæðið til að gera við. En svo var verkfærakassinn sóttur og tröppurnar og hafist handa við viðgerðir. Í fyrstu mótmælti Kjartan nú harðlega, "bara afi má gera við!!!" Við samsinntum honum og útskýrðum að þess væri óskandi, en því miður væri afi á Íslandi og gæti ekki komið til að gera við. Í tilfellum sem þessum væri ágætt að geta teleportað fólki á milli landa!!!!

En okkur tókst í sameiningu að finna nýjan múrtappa, reka hann í loftið og skrúfa ljósið aftur upp. Nú er bara að vona að það haldi....


Eftir þetta var Kjartan allur uppveðraður, fékk tröppurnar að láni og hóf að "gera við" og "skrúfa" ljós og slökkvara um alla íbúð. Fyrsta tilraunin var á ljósi á veggnum í stofunni. Eftir að viðgerðum okkar var lokið, benti hann á veggljósið og sagði það vera laust. Hann færði svo til stigann á réttann stað, náði svo í verkfærakassann sinn, sótti skrúfjárn og klifraði upp í stigann. Og það fyrsta sem barnið segir er: "Látum okkur nú sjá!!!!" Og hófst svo handa við að skrúfa ljósið!!!!

sunnudagur, júlí 01, 2007

9 mánaða

Tobbi varð 9 mánaða í gær!!! Þvílíkt sem tíminn er fljótur að líða.

Á 9 mánaða afmælinu var drengurinn kominn með 3 tennur (sú 3ja kom á sunnudaginn var) og 4 tönnin er skammt undan. Hann tekur reglulega miklar kjaftatarnir og rífur sig við hvern sem er. Hann elskar að hlaupa um í göngugrindinni og hann er farinn að hífa sig upp á 4 fætur annarsstaðar en í rúminu sínu. Svo það er stutt í skriðið. Hann er alltaf sami hláturbelgurinn, skellihlær að uppátækjum bróður síns eða kitli móður sinnar. Hann elskar að borða og borðar hvað sem er. Ég er byrjuð að gefa honum litla brauðmola og bananabita, seríós-hringi og rúsínur og hann fer létt með að skófla því í sig. Og hann getur setið tímunum saman með nefið ofan í dótakörfunni að skoða öll leikföngin sem í henni eru.


Í tilefni af afmælinu hefur öllum fötum í stærð 68 verið pakkað niður og búið er að pakka niður öllum heilu baby-náttfötunum, pabbanum til mikillar gleði. Nú eru það bara "venjuleg" náttföt sem blíva... en á myndinni er hann einmitt í fyrsta sinn í "venjulegum" tvískiptum náttfötum að kvöldi 9 mánaða afmælisdagsins!

laugardagur, júní 30, 2007

Sumarið er tíminn...

...þegar vambir springa út.

Það er búin að vera í gangi smá upphitun fyrir sumarfríið hér á bæ. Kjartan lauk síðasta skóladeginum nú á föstudaginn, og eftir tæpa viku verður brunað suður í Rhone-dalinn í kærkomið sumarleyfi.

Í dag fórum við í dálítinn leiðangur og keyptum kælibox og fleiri nauðsynjar fyrir ferðina. Þar sem spáin var góð var svo ákveðið að draga fram grillið. Úr því varð, þegar upp var staðið, alíslensk miðsumar-átveisla. Matseðillinn hljómaði upp á grísakótilettur í lime/sinneps-marineringu og grillaða kartöflubáta. Við föttuðum svo eftir á að hvort tveggja kom úr íslenskum uppskriftabókum. Aukinheldur kvað Ella upp þann dóm þegar kartöflurnar voru komnar á borðið að þær beinlínis æptu á kokkteilsósu. Mín beið ekki boðanna heldur blandaði á augabragði fram slíka blöndu sem kallaði fram nostalgísk leiftur af ýmsum þjóðvegasjoppum og mis-sveittum borgurum... Allt kom þetta mjög vel út, alveg sérstaklega marineringin sem gerði grísakjötið ólíkt meira spennandi. Opnuðum með þessu flösku af Gigondas, Santa Duc Hautes Garrigues frá 2001. Kröftugur sólberja- og vanillukeimur (Ella fann tilmeð súrheyskeim) og bragðaðist ennþá eins og nýtt vín. Verulega gott.

Þegar svo kom í ljós að eftirrétturinn voru grillaðir ávextir með súkkulaði a la mörlandinn (stórfenglegt!!) stóðst ég ekki mátið og setti í spilarann lagið sem er yfirskrift þessarar færslu. OK, það getur vel verið að það sé hallærislegt að hlusta á GCD. En það var bara orðið eins og maður væri kominn upp í sumarbústað í íslenskri sveit, þannig að músikin tilheyrði.

Þegar öllu þessu hafði verið sporðrennt vorum við orðin næstum ósjálfbjarga sökum ofáts (á svona stundum kemur magameðalið Amaro sér einstaklega vel). Kjartan tók ekki síst til matar síns og ljóst að þar er kjöt&kartöflumaður á ferð.

Semsagt ofát. Vonandi að maður fái að sofa út á morgun.

föstudagur, júní 29, 2007

Íslandsferðin

Var ekki kominn tími á ferðasögu???


Kjartan fór til Íslands í lok maí með afa sýnum og dvaldi einn hjá ömmu og afa í Efstasundinu í 2 og 1/2 viku. Fyrstu vikuna var amma Sigga í fríi og lék sér með stráknum sínum. Einhverja daga var Tóta móða með þeim og þau fóru í sund með Áróru litlu frænku og svo Fjölskyldu- og húsdýragarðinn með bæði Áróru og Auði Lóu. Það var víst mikið fjör hjá litla frændfólkinu. Næstu 1 og 1/2 vikuna var Kjartan hjá ömmu Síu á morgnana þar til amma Sigga kom og sótti hann um 2-leytið. Þau amma Sía voru iðin við að leika og fara í leiðangra um nágrennið, kíkja á róló, fara í fjöruna að henda steinum og heimsækja Bjarma. Svo var mikið leikið með "græjurnar", snúruflækjur sem amma Sía geymir ofan í skúffu, "viftuna", sem er gamli rokkurinn hennar langömmu og ýmislegt fleira. En eitt mátti amma Sía ekki gera og það var að lesa, skv. Kjartani má bara lesa bækur áður en maður fer að sofa!!!


Heima í Efstasundi var svo Kjartan yfirleitt að bardúsast í garðinum, slá grasið, vökva blómin, hjóla og leika sér. Lék sér eitthvað við krakkana í næstu húsum en mest við ömmu og afa. Hann kom víst lítið inn þessar vikur.


13. júní komum við Tobbi svo í vikuheimsókn. Við höfðum það náðugt hjá ömmu og afa í Efstasundi, lékum með Kjartani úti í garði, Tobbi fékk meira að segja að prófa róluna. Við áttum náðugar stundir við matarborðið og höfðum það ljúft. Við kíktum í heimsóknir til ömmu Síu og eyddum 17. júní upp í sumarbústað hjá langömmu og langafa. Á kvöldin var svo mamman dugleg að hitta vini og kunningja. Annað aðaltilefni ferðarinnar var að mæta í brúðkaup þeirra Írisar og Freys. Brúðkaupið var hreint út sagt meiriháttar, yndisleg athöfn og ofurskemmtileg veisla. Takk fyrir mig elskurnar!!!

Eftir alltof stutta dvöl á Klakanum héldum við svo aftur heim á leið....

fimmtudagur, júní 28, 2007

"Ég er í gangi"

Það er algjörlega kominn tími til að segja frá vélaáhuga Kjartans. Þið sem fylgist með reglulega hafið eflaust áttað ykkur á að Kjartan hefur yfirgengilegan áhuga á öllum tækjum og tólum, og skiptir þar engu hvort um er að ræða heimilistæki eða stórvaxnar vinnuvélar. Um leið og hann kemur heim úr skólanum eða er nývaknaður, er það hans fyrsta verk að sækja allar "græjurnar" (hrærivélina mína, ísvélina og samlokugrillið) inn í skáp og dreifa þeim um gólfin. Oftar en ekki heimtar hann líka að fá ryksuguna! Sjálfur á hann borvél og fleiri græjur og er óþreytandi að leika sér að þeim. Og græjurnar breyta um hlutverk bara eftir því hvað er "í tísku" þann daginn, stingsögin verður að straujárni eða hrærivélin að loftpressu. Eitt skemmtilegasta hobbýið er svo að hanga fyrir framan þvottavélina á meðan hún er í gangi og fylgjast með... enda er barnið algjörlega búinn að læra orð eins og "vinda" og "dæla út"!! Og hann er orðinn aðalhjálparkokkurinn við að setja í þvottavélina... hefur reyndar verið það lengi.

En nú hefur þessi vélaáhugi færst yfir á nýtt svið. Nú er hann mjög oft búinn að breytast í einhverja græju eða tæki. Oft og iðulega er hann að setja sig í gang og slökkva á sér aftur. Fræg er sagan af því þegar hann hljóp um allt og sagðist vera í gangi og sá frasi hefur heyrst oft síðan. Nema núna er hann farinn að slökkva og kveikja á sér með tilheyrandi hljóðum. Um daginn heima hjá ömmu og afa var hann að fara að sofa og áður en hann sofnaði var hann mjög upptekinn af því að stinga sér í samband og taka sig aftur úr sambandi. Þá setti hann fótinn á vegginn og var í sambandi!! Það var auðvitað mjög mikilvægt að taka sig úr sambandi áður en maður fór að sofa. Og oftar en ekki þarf hann að slökkva á sér fyrir svefinn! Einn daginn eftir að við komum heim var hann á hlaupum um húsið og allt í kringum mig, "í gangi". Síðan vildi hann að ég slekkti á sér, nema ég var með fangið fullt, í miðju kafi að elda, og komst ekki í að "slökkva á" barninu. Hann heldur áfram að hlaupa í kringum mig, suðandi um að "slökkva á sér". Nema hvað, eftir smá stund rekur hann upp grátrokur, stendur á miðju gólfinu háorgandi og vælandi "ekki skilja mig eftir í gangi!!!!"

Kjartan er líka farinn að lýsa öllum græjunum og vélunum sínum fyrir okkur, segir manni fjálglega frá hvaða hlutur er hvað á maskínunum sem hann er að leika sér með. Hann er kominn með ótrúlegan orðaforða yfir mismunandi vélahluti. Og þegar hann sjálfur er einhver vél þá lýsir hann því líka hvar einstakir hlutar eru. Dekkin á Kjartani eru fæturnir, bremsurnar eru á sköflungnum og dempararnir í brjóstkassanum. Eins gott að hafa það á hreinu ef hann skyldi þurfa á verkstæði!!!!!

Eitt er hann með á heilanum, en það eru viftur, veit fátt skemmtilegra en að fikta í viftunum okkar. Og allsstaðar eru viftur. Og viftur eru hlutar af hverri og einni einustu vél, í hrærivélinni, sláttuvélinni, þvottavélinni... og líka bílnum. Og bara svo þið vitið það, allt sem er hringlótt er vifta, t.d. eru flugvélar með viftur en ekki hreyfla!!! Og bíldekk geta líka verið viftur.

Reykjavík var algjört himnaríki fyrir litla vinnuvélaáhugamenn, allsstaðar voru gröfur eða kranar (lyftur á kjartönsku) og allskyns önnur tæki og tól. Þessi áhugi kemur sér reyndar mjög vel til að dreyfa huga hans og fá hann til að hugsa um eitthvað annað. Lengi vel höfum við séð krana einn út um gluggann hjá okkur og það má alltaf kíkja á hvað kraninn er að gera þegar litlir menn þreytast og pirrast.

Jamms, vélar og tæki! Enda er ég að verða snillingur í að þekkja muninn á allskyns tækjum, trukkum og vinnuvélum.

þriðjudagur, júní 26, 2007

Bloggleti

Hér er bloggletin í hæstu hæðum, enn einu sinni, og algjörlega kominn tími til að láta vita af sér. Það er bara mikið að gera, við mæðginin erum nýkomin aftur frá Íslandi og það tók tíma að taka upp úr töskunum og koma sér aftur í rútínu. Svo erum við að undirbúa ferðalag í Rónardalinn, en lagt verður af stað eftir 10 daga og listinn yfir það sem þarf að gera lengist með hverjum deginum! Og saxast lítið á hann....


Auk þess datt ég ofan í nýtt áhugamál. Ég eignaðist nýja linsu á myndavélina mína á dögunum og þvílíkur munur. Nú er sko gaman að leika sér að taka myndir. Svo ég er orðin kolfallin. Hangi tímunum saman á netinu að skoða myndir eftir aðra og læra ný trikk, leika mér með græjuna mína, skoða afraksturinn og fikta með myndirnar. Svo allur minn litli nettími fer í slíkt dútl.


Til að kóróna allt þá er Tobbi að taka tennur og er frekar pirraður ungur maður þessa dagana. Tönn númer 3 leit dagsins ljós í gær og það eru a.m.k. 3 aðrar á leiðinni. Svo hann vill helst vera í fanginu á okkur allan daginn og naga allt sem kemst nálægt honum. Hann liggur t.d. núna á gólfinu, búinn að mjaka sér nær stólnum og er að naga fæturnar á skrifborðsstólnum!!! Stubburinn er líka orðinn svo handóður að ég hef algjörlega gefist upp á að gera nokkuð með hann í fanginu!
Annars eru allir hressir og hlakka til að fara í frí!!!!