Við Kjartan gerðum enn eina tilraunina í morgun til að eignast nýja kaffikönnu. Gamla fína ítalska kaffimaskínan mín gaf upp öndina í próflestrinum um daginn, hreinlega komið gat á hana af ofnotkun! Þetta var fimmta tilraunin!!! Jepp. Hér í Brusslu er lítið um gourmet kaffibúðir, svo það var algjör himnasending að rekast á eina niðri á George Henri götunni í haust. Nema ég fór tvær ferðir í gær í þá búð en þá var hún lokuð! Ég hélt fyrst að það væri bara hádegislokun en svo kom í ljós í seinni ferðinni að eigendurnir höfðu tekið sér svona langt páskafrí. Og í millitíðinni hafði ég farið tvisvar í Habitat í leit að svona könnu en þá akkúrat er hún ekki til!!! En nú erum við loksins komin með nýjan grip svo það er hægt að drekka almennilegt kaffi aftur!
Góða veðrið er held ég komið til að vera í þessum heimshluta. Jei! Svona er spáin okkar næstu dagana! Sól sól og aftur sól. Kjartan elskar það, honum finnst svo gaman að vera úti, nema auðvitað á grasinu. Grasið virkar kannski labb-hvetjandi. Hann vill alls ekki skríða á grasinu. En hann getur endalaust leikið sér úti á svölum og svo er fína rólan sem afi setti upp alltaf vinsæl. Þeir feðgar voru úti í garði í gær að róla meðan ég bjó til matinn og ég heyrði hlátrasköllin í Kjartani alveg inn í eldhús!
Fyrst það er svona gott veður ætti ég eiginlega að hunskast út og taka til í garðinum. Þegar ég var í próflestrinum klæjaði mig í puttana að fara út og reita arfa og taka til! Núna þegar ég hef nægan tíma til þess er ég ekki enn komin út í beð. Tja, svona er maður skrýtinn. En garðurinn er þvílíkt að taka við sér af krafti þannig að mér veitir ekki af að fara að byrja. En svo veitir heldur ekki af að taka aðeins til innan hús. Tölvuherbergið er að drukkna í pappírum og blöðum og allskyns dóti. Til þess þarf að koma til ein IKEA ferð til að byrgja sig upp af tímaritakössum og e.t.v. nýrri bókahillu. Jamms, eins og það er gaman að heimsækja það hel#/%€$%##!!! Listinn er langur....
BTW, ég held ég reyni að skella inn myndum á eftir!
fimmtudagur, mars 31, 2005
miðvikudagur, mars 30, 2005
Jæja þá...
eins gott að fara að skrifa eitthvað hér svo þið gefist nú ekki upp á okkur!
Við erum sem sagt komin heilu og höldnu heim frá landi Engla. Höfðum það voðalega notalegt suður í Chichester eftir að hafa tekið power dag í London. Ferðasagan er væntanleg síðar... og myndir!
Og mér tókst að klára prófið. Það er önnur saga því þetta var ein ævintýralegasta próftaka sem ég hef lent í! Fyrir vikið var ég ekki komin út í góða veðrið fyrr en að verða tvö! Hrafnkell var svo sætur að fara svo með mig í lunch og hella upp á mig til að láta mig slaka aðeins á!
Prófsagan kemur líka síðar.
En nú er lífið bara að komast í sitt vanalega horf. Góða veðrið komið til að vera og bara sérdeilis gaman að vera til. Kjartan tók nú samt með sér laumufarþega frá Englandi. Hann nældi sér í einhverja veirusýkingu svo hann er allur doppóttur greyið. Fylgir því samt enginn hiti eða nokkuð annað svo hann er bara eins og hann er vanur, nema hann má ekki fara á crèche ef vera skyldi að þetta væri smitandi. Svo við mæðginin verðum heima og dúlla okkur þessa vikuna. Eina sem er að bögga hann er að það eru tveir vænir jaxlar á leiðinni upp og fyrir vikið geta litlir stubbar orðið svolítið pirraðir!
Minn maður gerðist nú nokkuð duglegur um helgina, fór að standa sjálfur út um allt og tók sér vænan labbitúr alveg sjálfur. Hins vegar lét hann af þessu um leið og hann kom heim. Við höfum vissan grun um að hér sé það gólfefni sem skipti máli. Í Chichester var nefnilega teppi á gólfunum og honum hefur þótt það vera betra! Var miklu stöðugri og mýkri lendingin ef maður skyldi detta á hausinn!
Jamms... en þið megið bíða spennt eftir ferðasögu og prófsögu....

þriðjudagur, mars 22, 2005
Síðasti lærdómsdagurinn!
Jei! Hlakka ekkert smá til að ljúka þessari törn! Eins og áður hefur komið fram þá er þetta ekki það skemmtilegasta sem ég geri! Og ég þykist ætla í nám í haust. Búff.
Enn einn dagurinn sem ég þarf að sitja inni og læra. Ákvað að byrja á því að blogga, koma mér í skriftargír. Fyrsta verkefni dagsins verður að æfa sig í ritgerðarskrifum á hálftíma. Ágætt að koma heilasellunum í gang með kaffibolla og bloggi.
Og enn er gott veður úti sem gerir þessar inniveru enn skelfilegri! Við Kjartan röltum á crèchið áðan á peysunni sem er vel við hæfi því það er opinberlega komið vor. Fyrsti dagur vorsins var í gær og að því tilefni hefur öllum úlpum og sokkabuxum verið lagt í bili. Isabelle og hinar fóstrurnar voru búnar að skreyta allt crèchið með fiðrildum, blómum, páskaungum og drekaflugum þegar við komum í morgun, voða sætt, og krakkarnir voru flest á tásunum. Greinilega vor í lofti!
Jæja, best að snúa sér að lærdómnum. Ekki nema 26 og hálf klukkustund eftir af þessari pínu!

mánudagur, mars 21, 2005
Stressið nagar mann...
Ójá, ég er orðin stressuð yfir þessu prófi! Finnst ég ekkert kunna! Og finnst ekkert ganga að troða þessu inn í hausinn á mér! Panik! Er samt að reyna að halda ró minni og læra meira. En læra samt ekki yfir mig. Ég var nú næstum búin að gera það í gær og geðvonskan eftir því!
Þetta er ekki það skemmtilegasta sem ég geri þegar veðrið er svona gott og ég hlakka ekkert smá til þegar ég er búin. Er strax farin að reikna í huganum hvenær á miðvikudaginn ég verð búin í prófinu, hvenær ég er sloppin!!! Hálf eitt í síðasta lagi bara svo þið vitið það!
Helst vildi ég nú bara geta verið með Kjartani út í garði að leika. Miklu skemmtilegra. Hann er auðvitað á crèche í dag. Var voða glaður þegar hann kom þangað í morgun og fór bara beint að leika. Nennti ekki einu sinni að veifa mömmu bless.
Ætla að fara í vænan labbitúr á eftir þegar ég er búin að sækja hann og kannski við notum góða veðrið og leikum úti í garði.
Svo fer nú bara að styttast í fríið. Hitta skemmtilegt fólk, bæði í London og Chichester. Við tökum nú smá forskot á það á morgun, því hún Theresa frænka ætlar að kíkja í heimsókn. Hún er eitthvað að spila í Bruges og ætlar að kíkja yfir til okkar á morgun. Það verður gaman að sjá hana!

sunnudagur, mars 20, 2005
Mont!
Var ég búin að monta mig?
Kjartani þykir svo gaman að leika með legókubbana og núna er aðalmálið að raða þeim saman. Í fyrradag tók hann sig til og raðaði 3 kubbum hver ofan á annan, án þess að ég hjálpaði til. Voða duglegur. Það er svo fyndið að fylgjast með honum því þetta er allt gert af mikilli vandvirkni. Hann er heillengi að setja fyrst kubbinn sem á að byggja ofan á á réttan stað og snúa honum rétt, svo þarf þessi sem á að fara ofan á að snúa rétt líka, svo er hann tekinn og það er heillengi verið að mausa við að koma þessu saman, en það tekst að lokum. Svo er mjög varlega farið með hendina í burtu og dáðst að öllu saman. Mamma er auðvitað mjög dugleg að klappa!!! En svo fara litlir menn að öskra yfir því að kubburinn sé FASTUR ofan á!!! Hann vill yfirleitt fá þann kubb til baka. Oft þurfa mömmur að vera snöggar að sækja nýja kubba!!!!

laugardagur, mars 19, 2005
Sól, sól og engin sól!
Oh, engin sól í dag! Samt ljúft vorveður en engin sól og þ.a.l. hitinn ekki yfir 15 gráðum. Svo sem ágætt, þá hef ég ekki afsökun fyrir því að vera ekki að læra. Sit hér við að taka æfingapróf og æfa mig í að skrifa ritgerðir. Skemmtilegra en helv... stærðfræðin. Sá það í gær að það borgar sig að blanda öðru saman við stærðfræðina, annars gefst ég bara upp.
En það var geggjað veður í gær. Ekki gaman fyrir lærdómshesta. Og dagurinn var mjög skemmtilegur fyrir vikið, mínus þessir tímar sem ég sat við að læra. Ég fór og sótti Kjartan á slaginu 4. Dagurinn hans var frábær á crèchinu, var í súpergóðu skapi og undi sér vel. Hafði einka-skemmtikraft þennan daginn, kom kona sem var að syngja með þeim og spila á lítil hljóðfæri og þar sem þau voru bara 2 mætt þennan daginn, og litla Alex-Ann sofandi, þá fékk Kjartan einkasýningu og þótti víst voða gaman. Tónlistin er greinilega hans svið!
Við fórum svo í langan göngutúr, kíktum aðeins í búðir og fyrst róló var pakkaður fórum við bara heim í garð að leika. Kjartan var eflaust hálftíma í rólunni, hún er svo skemmtileg, og hann tók ekki í mál að fara úr henni. Í eitt skiptið sem ég náði honum úr rólunni og á teppið, þá heimtaði hann að labba (jepp, hann neitar enn að fara á grasið) og minn maður tók beint strik að rólunni! Hér vil ég vera! Svo lágum við heillengi á teppi í grasinu að leika, hentum bolta og fleira gaman. Í hvert sinn sem boltinn fór út af teppinu og yfir á grasið þá fór Kjartan að brúninni á teppinu, sat svo þar, rétti út hendurnar að boltanum og öskraði og æpti. Hann skyldi sko ekki fara sjálfur út á grasið! Ekki veit ég hvaða brögðum maður þarf að beita til að fá hann til að venjast grasinu!
Því miður er ekki sama góða veðrið í dag, annars væru þeir feðgarnir eflaust út í garði (og ég að húka við tölvuna). Þeir fóru nú samt í labbitúr niður á markað í morgun og keyptu í matinn og eru búnir að leika heillengi upp í stofu. Enduðu svo báðir á því að steinsofna!
Og meðan þeir sofa ætla ég að ná að læra smá meira!

fimmtudagur, mars 17, 2005
Krílahittingur, sól og stærðfræði!
Hér er enn sól og læti, að vísu svolítið hvasst í dag en það stoppar okkur ekkert frá því að hafa opið út og njóta aðeins sólarinnar. Fullkomið að fara í labbitúr í svona veðri. En ég á auðvitað að vera að læra þessa helv... stærðfræði. Komst að því reyndar áðan að þetta sem ég hef átt í mestum vandræðum með er eiginlega eðlisfræði, hraði, tími og svoleiðis vitleysa. Er ekki að skilja þetta! Mér fannst fyrstu kaflarnir allt í lagi en þessi vitleysa, gúlp, ekki fyrir mig.
Ég skrópaði samt í lærdómnum í morgun og fór í kríla-mömmu-hitting. Voða gaman að hitta mömmurnar og krílin skemmtu sér ekkert minna. Þeim finnst orðið svo gaman að hittast og voru heilmikið að leika sér saman. Jón William var meira og minna í hláturskasti allan morguninn og Kjartan auðvitað á spretti með allt sem hann gat ýtt á undan sér. Þau eru líka ótrúlega miklar hermikrákur, ef einn fór fram á gang þá fór öll strollan á eftir, eða ef einn reyndi að fara upp stigann þá vildu allir. Verst að myndavélin varð batteríslaus svo ég náði engu á mynd!!!! Svo fengu allir sér hádegismat saman, fyrst krílin, og þótt allir hinir væru að borða þá vildi Kjartan ekki neitt. Svo fengu mömmurnar voða fínt grænmetislasagna og þá vildi Kjartan borða. Hámaði það í sig! Algjör sveppur!
Svo þegar við komum heim þá biðu skrúrkurnar mínar á tröppunum. Ég var búin að senda þeim skilaboð um að koma ekkert fyrr en 2 en þau mættu hálftíma fyrr svo þau voru búin að hanga hér fyrir utan. Sem betur fer gott veður. Þannig að húsið mitt verður hreinna með hverri mínútunni, allt farið að ilma af hreinlæti! Og ég er enn að berjast við Kjartan að fara að sofa. Hann sofnaði í 10 mínútur í bílnum og heldur að það sé nóg! Svo það er ekkert mikill friður til að læra. Skúrkurnar á fullu, ég þarf reglulega að hlaupa upp til Kjartans og gott veður úti! Maður þarf samt að bíta á jaxlinn! Til að toppa allt saman þá bræddi kaffikannan gúmmíhringinn svo ég get ekki einu sinni fengið kaffi til að hressa upp á heilasellurnar. Ég þarf að eignast nesara til að bjarga mér á svona stundum!

miðvikudagur, mars 16, 2005
Nú er vorið komið!
Ójá! Yndislega hlýtt og notalegt úti. Þegar ég kom úr vatnslitatímanum mínum út í góða veðrið þá kom svona hitalykt á móti manni, umm... greinileg ummerki um vor. Á leiðinni heim var ég í því að týna af mér spjarirnar, hehe, ekkert of mikið þó, en kápan fékk að fjúka.
Kjartan er á crèche í dag svo ég ætla að vera dugleg að læra. Fann kennsluefni á netinu fyrir lítinn pening (dollarinn er svo lágur) sem ég hef legið yfir. Nú er ég á skrilljón að prenta það út svo ég geti tekið það með út á svalir. Verð þar í eftirmiðdaginn að sleikja upp sólina og góða veðrið. Ætla að vera dugleg svo ég geti með góðri samvisku farið í smá göngutúr með Kjartan þegar ég er búin að sækja hann.
Kjartan var svo duglegur í gær. Hann er að stækka svo mikið og þroskast. Við sátum á gólfinu að leika okkur og hann var mikið að reyna að stafla litlu málunum sínum hvert ofan á annað. Og það tókst í nokkur skipti, hann var jafnvel að reyna að búa til litla turna. Svo var hann líka að reyna að raða legókubbunum saman. Hefur alltaf verið að fylgjast með okkur kubba, mest viljað leika með það sem maður er búinn að kubba saman. En í gær setti hann einn turn af nokkrum kubbum niður á gólfið, var lengi að láta hann standa, svo tók hann kubb og reyndi að bæta honum ofan á. Það tókst þegar mamma studdi við turninn sem fyrir var! Nú er ekki lengur aðal stuðið að tæma kubbafötuna heldur að setja ofan í hana. Og það fer allt þar ofan í. Hann reyndi meira að segja að troða Nemo í kubbafötuna!
Besta sagan af honum í gær var nú samt þegar ég var að skamma hann og banna honum að taka símann úr sambandi (þessir tenglar eru enn svolítið spennandi). Þegar það var orðið augljóst að hann fengi ekki að leika með tengilinn þá fór hann eins og eldibrandur yfir að geisladiskunum og fór að henda þeim út á gólf af miklum móð. Hann skyldi sko sýna mér að fyrst hann fengi ekki að leika með tenglana þá draslaði hann sko til!!!

þriðjudagur, mars 15, 2005
Allt á hvolfi.
Ég sit við að reyna að læra stærðfræði, hrikalegt alveg hvað maður hefur verið duglegur að gleyma henni í gegnum árin! Á meðan skríður Kjartan hér um og rústar öllu. Það er allt á hvolfi í húsinu, en ég kippi mér ekkert upp við það, ég er að reyna að læra. Smá panik í gangi, ég tók eitt æfingapróf í morgun og gekk ekkert vel. Náði sirka þriðjungi rétt!!! Svo manni er nokk sama hvort öllu er snúið á hvolf svo lengi sem litlir menn eru góðir og þægir og ekkert að hanga utan í mömmu sinni.
Við gerðum okkur nú samt smá dagamun í dag. Fórum í bæinn í góða veðrinu og hittu Hrafnkel í hádeginu. Fengum okkur að borða og fórum svo í leiðangur að leita að lestarvænni tösku, einni svona XL flugfreyju sem er þægilegt að draga. Svo nú erum við græjuð fyrir Englandsferðina! Kjartan var voða þægur og góður þótt þessi bæjarferð væri á hans svefntíma. Hann spígsporaði um rue Neuve með kerruna á undan sér, eignaðist vinkonu í neðanjarðarlestinni og skemmti sér konunglega. Á heimleiðinni komum við svo við á skrifstofunni hjá Hrafnkatli. Hann var fyrir löngu búinn að lofa Diane, ritaranum, að sjá Kjartan, og við gerðum enn eina tilraunina. Þær hafa verið nokkrar en Diane aldrei verið við. Kjartan heillaði auðvitað alla upp úr skónum og bossinn var farinn að bjóða honum djobb!
Og fyrst við eyddum svefntímanum í bæjarferð þá hefur Kjartan ekkert lagt sig í dag fyrir utan 5 mínútur í kerrunni, sem hann heldur að sé alveg nóg! Ég ætla að láta á þetta reyna og komast smá áfram með stærðfræðina. En lítill drengur verður eflaust orðinn mjög þreyttur í kvöld!

mánudagur, mars 14, 2005
Prófskjálfti!
Ég fékk tölvupóst í dag sem tilkynnti mér að ég væri skráð í GMAT próf á miðvikudaginn í næstu viku. Ég hafði skráð mig í þetta próf en fékk fljótlega tilkynningu að öll pláss væru uppbókuð en ég mætti hins vegar taka prófið í desember! Næsti möguleiki í stöðunni var að endurtaka leikinn með Arnhem en ég var ekki alveg að nenna því svo þetta GMAT dæmi var látið sitja á hakanum. Svo ég hef ekkert verið að læra fyrir þetta próf... eða nokkur önnur! PANIC!
Ég ætla nú samt í prófið og þykist ætla að vera rosalega dugleg næstu vikuna eða svo við að læra. Í staðin fyrir að dunda mér við vatnslitun eða annað skemmtilegt í dag eftir ræktina settist ég því niður við að finna æfingapróf og afla mér upplýsinga um hvernig maður lærir fyrir þetta próf. Jamms. Prófið er í 3 hlutum, rökfræði, stærðfræði og skilningur á ensku! Það síðasta hef ég nú engar áhyggjur af og rökfræðin ætti nú ekki að vera svo snúin (samt best að æfa sig fyrir það)! Það er hins vegar stærðfræðihlutinn sem ég hef áhyggjur af, ekki mitt uppáhalds fag! Ég skoðaði fyrsta æfingaprófið og við mér blasti þetta:
Mary is reviewing her algebra quiz. She has determined that one of her solutions is incorrect. Which one is it?
2x + 5 (x-1) = 9 x = 2
p - 3(p-5) = 10 p = 2.5
4 y + 3 y = 28 y = 4
5 w + 6 w – 3w = 64 w = 8
t – 2t – 3t = 32 t = 8
PANIC! AFTUR!
Ákvað að það væri best að taka smá upprifjun á stærðfræðinni! Og þar sem allar mínar gömlu kennslubækur eru upp á háalofti í Efstasundinu er lítið annað í stöðunni en að leita á netinu. Fann sem betur fer nokkrar stærðfræðisíður svo ég hef legið í dag yfir upprifjun á algebru og fleiru skemmtilegu. PÚFF! Efast um að það sitji mikið eftir!
Svo ég ætla að biðjast velvirðingar fyrirfram ef þessi bloggsíða okkar verður lítið uppfærð á næstunni. Það þýðir bara að ég er busy við að læra.
Annars er það helst í fréttum að Kjartan er kominn með enn eina tönnina, nr. 8, og það eru tvær augntennur á leiðinni. Hann er búinn að vera frekar pirraður og vælugjarn um helgina, lái honum einhver, með niðurgang og læti. Greyið litla! En samt ótrúlega sprækur og gat alveg tekið góð hlátursköst ef mamma og pabbi voru nógu dugleg að sinna honum. Svo er hann alltaf að æfa sig að standa, farinn að gera það mun oftar. Hugsa að þegar það verði orðið eins og að drekka vatn þá fari minn maður af stað á tveim jafnfljótum.
Nóg í bili, kominn tími á að sækja stubbinn á crèche!

sunnudagur, mars 13, 2005
Ljúfur sunnudagur
Í tilefni af því að gráminn er smám saman að hverfa, hitastigið að hækka og sólin farin að brjótast út úr skýjunum ákvað litla fjölskyldan að taka sér smá göngutúr í dag. Við röltum okkur hérna ofar í Wezembeek, í gegnum gamla þorpið og í stóran garð sem er þar. Þar var fullt af leiktækjum svo Kjartan gat fengið smá sprell. Rólan er alltaf jafn vinsæl, hann skellihlær þegar hann er í rólunni, það er svo gaman. Það nýjasta var samt rennibrautin, voða stuð að renna sér niður og mikið reynt að príla aftur upp. Mamma eða pabbi áttu samt að halda fast í lítinn stubb. En mestum tímanum eyddi Kjartan í að rölta með kerruna um leikvöllinn. Skemmti sér konunglega og vildi svo alls ekki fara aftur í kerruna. Hundleiðinlegt. Við röltum áfram og vorum nánast komin út í sveit, gengum skógarstíga og yfir akra og tún. Sáum hunda og ketti, endur og allskyns fugla. Wezembeek, sérstaklega ofar í bænum, er algjör sveit í borg!
fimmtudagur, mars 10, 2005
Kjartan sjónvarpsstjarna!
Jahá, Kjartan byrjar snemma á fræðginni! Hann kom í belgíska sjónvarpinu í gær! Foreldrarnir horfðu stolltir á þessar nokkru sekúndur sem hann birtist á skjánum!
Myndbrotið kom í þessum þætti, en þeir voru að fjalla um fólk sem er að stofna eigið fyrirtæki. Og hún Isabelle fóstran okkar var önnur þeirra sem tekin voru fyrir og fylgst með því þegar hún var að koma crèchinu í gang. Síðasta myndbrotið var svo frá fyrsta deginum í crèchinu og þar var Kjartan auðvitað á meðal allra hinna barnanna. Sat voða myndarlegur og hrissti hringlur sem sögukonan kom með og þegar hann var á fullu spani um gólfið. Jamms, hann byrjar snemma á ýmsu!

miðvikudagur, mars 09, 2005
Eigingirni og samviskubit
Ég var svolítið eigingjörn í morgun. Ég mældi Kjartan þegar hann vaknaði og þar sem hann var hitalaus fór ég með hann á crèche. Þegar við komum þangað var hann mjög lítill í sér, vildi vera frekar nálægt mömmu sinni og leist ekkert á staðinn. Ég var heillengi með honum að leika og reyna að láta honum líða betur, sem virkaði í smástund, en þegar ég fór þá hágrét hann. Vildi ekkert að mamma færi. Þegar ég var að fara fannst mér líka að hitinn væri að hækka! Isobel sagði mér bara að fara og hún skyldi fylgjast vel með honum, hringja í mig ef hann yrði alveg ómögulegur. Og ég fór á námskeiðið mitt.
En núna er ég með þvílíkt samviskubit, finnst ég hafa verið svo vond við barnið mitt. Hefði frekar átt að vera heima með hann í morgun. En Isobel hefur ekki enn hringt svo það amar varla mikið að honum, gæti verið með einhverjar kommur, en greinilega ekki illa haldinn. En ég er samt með samviskubit! Svona er maður skrýtinn.
En námskeiðið var geggjað. Við vorum að leika okkur með liti í morgun, prufa að blanda saman og láta þá renna saman, nota mismikið vatn og bara prufa allt sem okkur datt í hug. Ótrúlega gaman. Maður þarf virkilega að hætta að hugsa í reglum, hvað má og hvað má ekki... það má nefnilega allt! Hugsa út fyrir kassann... og maður hefur svo gott af því! Nota hægra heilahvelið meira og finna í sér sinn innri listamann. :-D

þriðjudagur, mars 08, 2005
Lasarus og mamma innipúkar
Jæja þá, við Kjartan verðum að innipúkast í dag. Hann var voða rellinn í gær þegar ég sótti hann á crèchið en ég var ekkert að kippa mér upp við það þá, allir ormarnir voru frekar rellnir þennan seinnipart, vældu og skældu hvert í kapp við annað. Orkan var greinilega búin. Nema Kjartan hætti ekki að væla og rella svo ég mældi hann og hann var með 38.7°. Svo hann fékk stíl og pela og fór snemma í rúmið. Hann er enn með smá hita, 37,5° svo við ætlum að vera heima í dag og ná þessu úr honum. Og einmitt dagur þegar við áttum að vera svo upptekin. Það var húsmæðrahittingur í morgun á Le Pain Quotidien, svo ætlaði ég með Sillu að hitta saumakonuna sem gerði brúðarkjólinn hennar. Það þarf nefnilega að fara að hugsa fyrir slíku á þessum bænum. Og svo átti Kjartan að fara í 1s árs sprautuna í dag en ekkert verður að því.
Híhí, ég hringdi áðan í K&G (ungbarnaeftirlitið) til að aflýsa tímanum í dag. Ég náði ekki sambandi við hjúkkuna í Wezembeek, eflaust á fullu að sjá um þessa litlu unga, svo ég hringdi í centerið í Kraainem. Hjúkkan sem svaraði þar talaði nú enga súper frönsku en mér tókst að koma þessu til skila til hennar að ég þyrfti að aflýsa tímanum og fá nýjan. Einhvern vegin gat hún ekki séð nafnið hans Kjartans eða kópíerað það yfir á nýjan tíma svo hún bað mig að stafa það. Það gekk nú frekar brösulega, Kjartan náði hún, en HRAFNKELSSON. Lá við að konan fórnaði höndum!!!! Hún var ekki alltaf að skilja mig, heyrði F sem S og fleira skringilegt svo það verður áhugavert að sjá hvernig nafnið hans verður stafað!!!!
Ég er búin að sannreyna kenninguna hennar Ásdísar um týndu hlutina. Áðan var ég að leita að varasalvanum mínum sem Kjartan er alltaf að leika sér með og er núna horfinn. Ekki fann ég varasalvann en nefdroparnir eru komnir í leitirnar! Voru auðvitað á mjög áberandi en stórfurðulegum stað!
Jæja, nóg í bili, Kjartan er farinn að borða pappír sem eru greinileg merki um svengd! Held við förum í fóðrunardeildina!

sunnudagur, mars 06, 2005
Búálfur í húsinu!
Lyklarnir fundust! Sem betur fer. Kjartan hafði verið að leika sér með þá og skilið þá eftir á undurfurðulegum stað þar sem mér datt ekki í hug að leita. Svo var eins og ég fengi hugskeyti frá lyklunum, datt í hug að kippa út einum tímaritskassanum úr hillunni og þar ofan á lágu lyklarnir. Ekki í fyrsta sinn sem bíllyklar hverfa af völdum Kjartans! Svo er ýmislegt fleira að hverfa líka. Hrafnkell leitaði að inniskónum sínum í allan gærdag, einn Friends-diskurinn er horfinn og sama hvað við leitum þá finnum við ekki nefdropana hans Kjartans. Kjartan er auðvitað grunaður um alla þessa glæpi! Við römbum fram á þessa hluti einn daginn, eflaust á mjög óvenjulegum stöðum.
Svo kom litli gourmetinn okkur gjörsamlega á óvart í gærkvöldi. Foreldrarnir voru að fá sér smá snarl, osta og ólífur. Nema litli strumpur ákvað að stoppa við og kíkja aðeins á veigarnar. Fannst þessar svörtu ólífur vera frekar spennandi og stakk einni upp í sig. Og það var ekki að spyrja að því. Hann raðaði í sig ólífunum, var gjarnan með eina í nesti í hendinni! Svo fékk hann sér smá osta. Byrjaði nú á því að taka örlítinn bita til að smakka en leist svo vel á bragðið að hann skellti bitanum strax upp í sig, og kláraði alla bitana sem ég lagði fyrir framan hann. Svo ostar og ólífur eru á matseðlinum hér með!

föstudagur, mars 04, 2005
Ennþá snjór og týndir lyklar.
Snjórinn er sko ekkert að fara héðan, sýnist hann kominn til að vera! Vona samt ekki. Sýndist á veðurspánni að þeir séu farnir að lofa rigningu eftir helgina. Satt að segja finnst mér allt skárra en þessi snjór. Kominn mars og vorið á að vera komið hér á flatlendinu.
Kjartan steinsvaf í alla nótt og var ógurlega sprækur í morgun, svo ég fór með hann á crèchið. Hann trallaði alla leiðina og var svo voða glaður þegar hann kom á staðinn. Gaf Isobel vænan knús og vildi svo ólmur fara að leika. Kíkti fyrst á hana Alex-Anne sem steinsvaf í ömmustólnum. Honum finnst hún voða spennandi en hann fer ekkert varlega í kringum hana. Svo litlu dömunni var forðað á öruggan stað. Hann veifaði bara mömmu bless og þau Isobel fóru að leika. Engin tár! Það er greinilegt að honum líður vel þarna og finnst gaman. Þá líður líka mömmunni betur með að senda barnið frá sér!
Ég ætlaði hins vegar að vera voða dugleg og skella mér í ræktina, fara að versla og fleira. Nema þegar ég var tilbúin að fara út úr húsinu þá fann ég ekki bíllyklana. Bíllinn okkar er á verkstæði og við erum með lánsbíl frá umboðinu okkar (merktur umboðinu í bak og fyrir). Ég er búin að vera á hlaupum hér um allt hús að leita að lyklunum, leita ofan í öllum skóm, í öllum vösum, undir borðum og húsgögnum, inn í skápum, ofan í öllum plastpokunum í eldhússkápnum, inn í bílskúr, úti á stétt, allsstaðar. Og ekki finnast lyklarnir!!!! Eftir rúmlega klukkutíma puð við að leita gerði ég mig að fífli og hringdi í umboðið. Þau eru núna að leita hvort þau eigi aukalykla. Krossum fingur! Ef ekki þá veit ég ekki hvað gerist. Skemmtileg byrjun á deginum!

fimmtudagur, mars 03, 2005
Hanga heima dagur
Við Kjartan erum að hanga heima í dag. Hann er ekki á crèchinu á þriðjudögum og fimmtudögum, það eru svona dagar sem við njótum þess að vera saman tvö og leika okkur. Núna get ég nefnilega reddað öllu öðru hina dagana. En það verður lítið gert í dag nema vera heima og leika sér. Kjartan er orðinn svona svakalega kvefaður. Var frekar slappur í gær en ekki með hita svo ég fór með hann á crèchið, nema um 11-leytið var hann kominn með 38°. Fóstrurnar gáfu honum stíl og svo svaf hann heilan helling. þegar hann vaknaði aftur var hann bara þvílíkt sprækur, hress og kátur. Ég sótti amk mjög kátan strák um 4-leytið og við fórum heim að leika okkur. Þá virtist hann alveg vera laus við kvefið. Hins vegar var hann alltaf að vakna í nótt, vaknar yfirleitt þegar nefið er alveg stíflað og hann nær ekki að totta snuðið sitt. Og svo tók hann nokkur hóstaköst. Svo það var lítið sofið á þessu heimili í nótt.
Það var því ákveðið að hanga heima í dag, enda frost og kuldi úti. Enn og aftur hefur snjóað, það var þvílíka vetrarmyndin sem blasti við út um gluggann í morgun. Ef maður hefði ætlað að mála landslagið hefði hvíti liturinn eflaust klárast!!! Svo við mæðginin vorum bara að leika okkur með kubbana, bílast smávegis og lesa. Bækurnar eru alltaf jafn vinsælar og svo eru litlir menn að fatta þetta með að ýta sér áfram á bílnum sínum. Gengur miklu hraðar samt að ýta honum á undan sér en það er stundum reynt að sitja, stýra og ýta sér. En orkan er í litlu skömmtun þegar menn eru kvefaðir svo litli strumpur lognaðist út af eftir hádegismatinn. Ég vona bara að hann sofi vel og nái kvefinu úr sér. Við svo sjáum bara til með það hvort hann fari á crèchið á morgun.

miðvikudagur, mars 02, 2005
Dagur tvö á crèche
Það var mikið stuð fyrsta daginn á crèchinu, fóstrurnar Isobel og Talia sáu strax hvað Kjartan er mikill orkubolti, hann stoppaði varla. Mátti ekkert vera að því að sitja með hinum krökkunum og syngja, minn maður var svo upptekinn af því að leika sér. Hann var í því að flytja til stóra dótið, ýtti á undan sér boxunum undan leikföngunum, stólum og fleiru. Það besta var samt dúkkukerran, hún var óspart notuð til að komast á milli. Hins vegar þótti það ekki eins sniðugt þegar hann ætlaði af stað með ömmustólinn sem litla 4 mánaða prinsessan Alex-Anne sat í. Þá þurfti að stoppa kauða. Svo var hann víst voða duglegur að borða, vildi meira að segja borða bananann heilan eins og hinir strákarnir, en ekki fá litla bita eins og smábarn. Sat víst voða rogginn með bananann og smjattaði á honum. Það var mjög kátur strákur sem ég sótti í lok dagsins og mjög þreyttur. Hann þurfti samt aðeins að skæla þegar ég sótti hann, bara til að sýna mömmu sinni að hann saknaði hennar. Við fórum svo heim og höfðum það notalegt, vorum aðallega í rólegum leikjum og að lesa bækur. Kjartan sofnaði svo hálf 8, þá var hann orðinn gjörsamlega úrvinda af þreytu. Taka á þessir dagar á crèchinu.
Kjartan fór svo aftur á crèchið í morgun. Við röltum okkur yfir í snjónum og hann var svo kátur þegar hann kom þangað. Kannaðist greinilega við sig og fannst þetta spennandi að vera kominn aftur. En svo þurftu menn að skæla þegar Isobel tók við honum, hann var ekki alveg sáttur við að mamma fengi ekki að vera með. Í dag var allt miklu rólegra, ekki eins mikið af aukagestum, og margt í gangi eins og fyrsta daginn. Fóstrurnar og krakkarnir sem voru mætt sátu á púðunum og kúrðu og spjölluðu. Efast um að Kjartan hafi skælt lengi, besti vinur hans hann Matheo var líka mættur og greinilega kátur yfir því að sjá Kjartan. Ég hugsa að Kjartan hafi afskaplega gott af því að vera kominn á crèche.
Ég fór hins vegar á vatnslitanámskeiðið mitt. Það er alltaf jafn gaman. Kennarinn kemur með krefjandi verkefni í hverjum tíma og þótt í byrjun finnist mér stundum að ég eigi ALDREI eftir að geta þetta þá kemur það einhvern vegin smám saman. Maður hendir sér bara út í djúpu laugina og tekur svo til við hundasundið! Í dag fengum við það verkefni að mála stafla af handklæðum og þvottapokum í ýmsum litum. Þótt það hljómi skringilega þá er þetta ótrúlega góð æfing í því að nota og blanda liti, og leika sér með skugga. Mín mynd varð alveg þokkaleg á endanum. Gæti orðið betri með æfingunni. Nú hef ég amk einhvern tíma til að leika mér með vatnslitina þegar Kjartan er á crèchinu.
Jamms, það er sko rétt að Kjartan sver sig í fjölskylduna með áti sínu á ís. Neitar því sko ekki. En eitt aðalprófið var samt á mánudagskvöldið. Þá var honum boðið upp á afganginn af lasagnanu. Hrafnkell var búin að hóta því að barnið færi í DNA prufu ef hann neitaði þeim ágæta mat. Sem betur fer verður ekkert af því þar sem Kjartan borðaði lasagna með bestu list. Sko strákinn.

þriðjudagur, mars 01, 2005
Grasmamma!
Jamms, þá er komið að því! Ég er orðin grasmamma! Þetta er fyrsti dagurinn hans Kjartans í crèchinu. Við mæðginin röltum korter yfir 8 í morgun yfir á crèchið í þvílíkri snjókomu og kulda. Það var eins og Kjartan fyndi eitthvað á sér því hann fór að hágráta á leiðinni og var enn hálf skælandi þegar við komum. Við vorum langfyrst og Kjartan var ekki alveg viss um þetta í byrjun. En það var samt svo mikið af spennandi dóti, púðar til að príla í, boltar og fleira skemmtilegt, að hann stakk fljótlega af frá mömmu sinni og fór að leika. Fljótlega komu svo fleiri krakkar ásamt mömmum sínum og það var orðið mikið líf og fjör. Þau verða 5 til að byrja með, ein lítil dúlla sem er 4 mánaða og svo 4 gaurar, Luca sem er 2ja ára, Noah sem er 20 mánaða, Matheo sem er 15 mánaða og svo Kjartan. Luca er mjög uppátækjasamur og Noah fylgir honum í öllu. Algjörir gaurar og Kjartan var fljótt farinn að elta þá tvo. Matheo var miklu rólegri og var mest í því að passa að mamma hans færi ekki strax. Ég hef sko engar áhyggjur af þessu, held að Kjartan eigi eftir að pluma sig vel þarna, hann var svo upptekinn og það var svo gaman hjá honum að hann tók ekkert eftir mér. Ég sat þarna í rúman klukkutíma og fór svo bara heim. Þegar ég var að fara var að byrja prógram dagsins, komin stelpa til að syngja með þeim, og svo verða þessar elskur litlar sjónvarpsstjörnur. Þarna var kominn blaðamaður sem ætlar að gera smá pistil um fyrsta daginn í leikskólanum. Svo var listakona að setja sig í stellingar en hún ætlar að mála myndir á veggina af litlum sætum músum (eins og eru í logoinu fyrir crèchið) sem eru að leika sér. Og það á víst líka að taka myndir af því. Sem sagt voða spennandi dagur á crèchinu hjá þessum litlu krílum. Ég á von á því að ég sæki frekar þreyttan lítinn gaur seinna í dag.
Annars er þetta eflaust erfiðast fyrir mig. Þetta er svo skrýtið. Ég var svo farin að hlakka til að Kjartan færi á crèche, þá gæti ég gert þetta og hitt, farið þarna og gert þetta, nema núna er eins og ég sé handa- og fótalaus, veit ekki alveg hvað ég á að vera að gera! En ég efast ekki um að ég finni út úr því. Nóg af verkefnum framundan, sækja um skóla, undirbúa brúðkaup og fleira skemmtilegt. Svo er stefnt á Englands-ferð um páskana og Íslandsferð í apríl.

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)