fimmtudagur, júlí 06, 2006

Þreytt mamma

Úff, það er sko þreytt mamma sem skrifar þessar línur. Kjartan er nefnilega heima við þessa dagana og það er sko þreytandi að hlaupa á eftir einum atorkusömum 2ja og hálfs árs orkubolta þegar maður er kominn á 7. mánuð! Pjúff!

Kjartan tók nefnilega upp á því að fá 39 stiga hita aðfaranótt þriðjudagsins, sem síðar varð svo ekkert, en með það, nefrennsli og hósta fór ég með hann til barnalæknisins, sem eftir nánari skoðun úrskurðaði að hann væri að fá síðustu 2 jaxlana og það væri orsök alls, hitans og nefrennslis, og hóstinn væri af því að bæði rennslið úr nefinu og of mikið munnvatn færi oafn í hálsinn og erti hann. Hitalaus fór hann svo á crèchið á miðvikudaginn nema fóstrurnar ætluðu nú ekki að kaupa þessar skýringar læknisins. Samþykktu þó að hafa barnið, nema þær hringdu aftur í hádeginu, en þá var hann með 38 stiga hita og einhverjar rauðar bólur að birtast á líkamanum. Svo ég sótti hann snemma og ætlaði með hann til læknis en við komumst ekkert að hjá barnalækninum fyrr en eftir hádegið í dag. Svo Kjartan var bara heima í dag, með nokkrar kommur og engar rauðar bólur! Í fullu fjöri og lætur mömmu sína svoleiðis hafa fyrir sér. Ég fæ ekki að sitja kyrr í 5 mín, þá þarf að þjónusta ungan mann. En hann er voða góður og kátur og finnst ekkert leiðinlegt að vera heima hjá mömmu. Nema svo fórum við aftur til doksa sem sá heldur engar rauðar bólur og kvað AFTUR upp sama úrskurð, þetta eru tennurnar!!!! Nema fóstrurnar á crèchinu eru ekki alveg að samþykkja þessa sjúkdómsgreiningu, svo litla orkudýrið verður víst heima einn dag enn! Þær eru alveg ótrúlega sjúkdómshræddar og eru stundum að gera mig geðveika á veseninu í sér! En til að vera góð og sýna gott fordæmi hef ég barnið heima, fullfrískt!!! Við notum þá bara tækifærið og gerum eitthvað skemmtilegt saman!

mánudagur, júlí 03, 2006

Jeremías minn!

Þetta er veðurspáin í dag og tölurnar eru ennþá hærri fyrir morgundaginn! Ég er að bráðna! Svona var öll helgin og maður er bara dasaður og eftir sig eftir hitann. Maður þarf að passa sérstaklega upp á Kjartan því honum finnst svo gaman að vera úti að leika, svo verður hann mjög þreyttur og pirraður. Ég er á vaktinni að hella ofan í hann vatni eða íspinnum, og dreg hann reglulega inn til að lesa eða horfa á Bóbó bangsa eða Stubbana, bara til að kæla barnið niður.

Helgin okkar var voðalega notaleg, í rólegheitunum í hitanum. Á laugardaginn tókum við daginn snemma og brummuðum til Wepion. Þar röltum við aðeins meðfram Meuse ánni, hentum steinum, horfðum á endur og dáðumst að útsýninu. Síðan var megintilgangur ferðarinnar framkvæmdur, að kaupa jarðarber í Wepion en þar fást bestu jarðarber í heimi. Keyptum helling af gömlum bónda við veginn og karlinn var svo skotinn í Kjartani að Kjartan græddi nokkur jarðarber fríkeypis!
Eftirmiðdeginum eyddum við í garðinum. Mamman tók sig til og garðyrkjaðist svolítið og Kjartan væbblaðist um og hjálpaði mömmu. Hann hjálpaði mér um daginn að slá grasið og núna vill hann helst ekki gera annað en að slá!! Svo bjargaði hann einhverjum sniglum og brummaði um með hjólið sitt og bílinn.
Um kvöldið komu svo Óli og Laurence í grill og við höfðum það notalegt út í garði fram á nótt. Við tókum á móti þeim með moldóvísku frussi, svo mættu þau með jummí kartöflurétt í forrétt. Þá grilluðum við lamb à la Nigel Slater ásamt paprikum og eggaldinum og drukkum rautt Montrassgat með. Í desert voru svo jarðarberin góðu ásamt heimagerðum ís. Sérlega gott allt saman og skemmtilegt kvöld.

Á sunnudaginn vorum við svo bara í leti. Sváfum öll lengi enda fóru allir fjölskyldumeðlimir seint að sofa. Sátum svo lengi yfir morgunmat og góðum bolla af kaffi. Við reyndar tókum til eftir matarboðið og stóðum í smá garðverkum, en meiri var dugnaðurinn ekki, enda of heitt til þess. Seinnipartinn fórum við í smá göngutúr í Woluwe-garðinn þar sem Kjartan fékk að henda spýtum og steinum í hausinn á gæsum og hrella þær svolítið. Eftir letimáltíð var svo legið yfir bókum og sjónvarpsglápi og farið snemma í háttinn.

Næstu dagar verða svo eflaust í letigírnum enda bjóða hitatölurnar ekki upp á annað. Svo er bara að krossa putta og vona að það fari að kólna aðeins!

laugardagur, júlí 01, 2006

Grillun

Lífið í Brusslu er aftur komið í sinn vanagang. Það tók Kjartan nokkra daga að venjast aftur crèchinu en seinnipart vikunnar var hann nú bara farinn að veifa mömmu bless og skældi ekkert þegar hún fór. Ég bjóst nú við að það tæki lengri tíma en nei. Og hann var bara kominn á fullt í fjörið með krökkunum og tók þátt í öllu sem þau voru að gera. Hann lét nú mömmu sína samt vita á morgnana að hann væri nú ekki alveg sáttur við þetta, svaraði alltaf: "Ekki kakka" (ekki krakka) þegar ég spurði hann hvort við ættum að fara að hitta krakkana.

Hér er svo komið fínasta grillveður, sól og heitt, svo maður er vel grillaður eftir daginn. Sem betur fer er húsið vel svallt inni svo maður getur alltaf flúið inn. Og hvað gerir maður í svona miklum hita. Ekki neitt!!! Helst alls ekkert!!!

Hins vegar er stéttin okkar komin í fulla notkun. Iðnaðarmennirnir kláruðu loksins að múra vegginn sem snýr inn í okkar garð svo við gátum farið að snyrta til á stéttinni og raða upp borði, stólum og sólhlíf. Og veðrið hefur ekki verið amalegt svo það er setið út í garði og borðað á hverju kvöldi. Það bíður svo sumarsins að snyrta garðinn aðeins til og gera þetta ennþá huggulegra.

Ein góð saga af Kjartani í lokin. Við vorum í bíltúr í vikunni og Kjartan var eitthvað að kvarta í aftursætinu. Ég fór þá að tala um hluti sem við sæjum í umhverfinum til að dreifa huga hans, benti honum á bílana og sérstaklega á einn blæjubíl. Segi við Kjartan að þarna sé bíll með ekkert þak. Heyrist þá í barninu: "Þakið er bilað"!!!! Hér með heita blæjubílar "bílar með bilað þak" á þessu heimili!!!!!

þriðjudagur, júní 27, 2006

Nýjustu fréttir af Leópold

Við fórum í sónar í gær, loksins kom að stóra sónarnum, en út af flakki okkar um heiminn komumst við ekki á réttum tíma í þessa merku skoðun. Fórum s.s. á spítalann í alvöru sónargræju og fengum svaka show. Læknirinn var voða næs og sýndi okkur allt, heila, hjarta, hrygginn og helstu líffæri. Taldi fingur og tær og úrskurðaði að þetta væri fullkomið barn. Sem við vissum auðvitað. Sáum flottar andlitsmyndir af krílinu, m.a. þegar það stakk puttanum upp í sig og saug. En það mikilvægasta var auðvitað að fá að vita kynið og það fór sko ekkert á milli mála!! Það er annar strákur á leiðinni!!! Svo nú er hægt að fara að kaupa allt í bláu og skreyta barnaherbergið á strákalegan hátt. Það verður fjör hér á bæ næsta vetur með tvo fjöruga stráka, því miðað við spörkin og lætin í bumbunni mun Leópold ekki slá bróður sínum við í fjörinu.
Næsti hausverkur er svo að ákveða nafn, því hér þurfum við að vera búin að nefna áður en við förum heim af spítalanum. Strákanöfnin þvælast fyrir okkur, en við eigum aldrei í neinum vandræðum með stelpunöfn... hins vegar virðumst við ekki kunna að búa til stelpur!!!

mánudagur, júní 26, 2006

Fríið búið og við komin aftur í hversdaginn!

Þá er fríið búið og við aftur komin heim til Belgíu. Það var alveg yndislegt að koma aðeins á Klakann og hitta vini og ættingja. Verst (eða best) að maður er minntur á alla þá sem maður saknar, ég vildi varla fara aftur!!! Þetta var alveg yndislegt en alltof stutt. Það var stíf dagskrá allan tímann og við komumst því miður ekki yfir að hitta alla.
Þið sem við hittum: Takk fyrir heimboðin og allar trakteringar, það var hrikalega gaman að sjá ykkur aftur.
Þið sem við náðum ekki að hitta: Þið verðið efst á lista í næstu heimsókn, sem verður líklega um jólin!

Kjartan hafði það mjög gott á Íslandi eins og sjá má á myndinni. Þvílíka ævintýrið sem þessi Íslandsferð var fyrir ungan mann. Hann talar ennþá um það þegar hann var að henda steinum í vatnið, sat í gröfu og sló grasið með afa.
Málþroska Kjartans fór þvílíkt fram á þessum mánuði og núna stoppar barnið varla. Orðaforðinn eykst á hverjum degi og það er ótrúlegt hvað hann tengir saman, fattar að nota orðin í nýju samhengi eða tengja nokkur saman. Svo skemmtilegt að fylgjast með þessu.

Ein skondin saga: Við vorum að keyra upp í sumarbústað til langömmu og langafa í Kjósinni og keyrum meðfram Esjunni. Bendir þá ekki barnið á fjallið og segir: "Stóra stein". Mjög rökrétt hjá honum en foreldrarnir næstum dóu úr hlátri!

Núna erum við bara komin í hversdaginn aftur. Húsið beið okkar í heilu lagi, en því miður eru iðnaðarmennirnir sem eru að laga húsið við hliðina á okkur ekki búnir að klára vegginn í garðinum, svo ég get enn ekki tekið til á stéttinni og sest út. Þar er allt í drasli eftir þá!
Eftir nokkurra vikna ferðalög voru allir fegnir að koma heim til sín í sitt dót. Kjartan faðmaði Bakó (Jakob) að sér og hefur ekki skilið við hann síðan við komum heim, og allt er voða mikið nýtt og spennandi. Ég held að foreldrarnir hafi verið mest glöð að komast aftur í sitt rúm...
Í morgun byrjaði svo hversdagurinn aftur, Hrafnkell fór í vinnuna og Kjartan á crèchið. Þetta á eftir að vera erfið vika fyrir lítinn mann, hann var háskælandi þegar mamma fór í morgun, en fóstrurnar hafa ekki enn hringt svo það hefur líklega rjátlast af honum. Ég er svo bara í því að venjast því aftur að þurfa að hafa ofan af fyrir mér, hugsa um heimilið og strákana mína. Þetta verður rólegheitasumar hjá mér, að sóla mig með bumbuna út í loftið og búa sig undir átökin þegar krílið kemur!

föstudagur, júní 16, 2006

Ísland gamla Ísland

Sungið með tilþrifum!!!

Við hjónakornin erum sem sé mætt á Klakann, í rigninguna og góða veðrið. Kjartan var nú bara hissa á að hitta á foreldra sína þarna út í flugstöð, tók smá tíma í að fatta þetta, benti svo brosandi á okkur til skiptis og sagði: Mamma. Pabbi. Og endurtók það eftir þörfum langt fram eftir degi.

Fríið hans hjá ömmu og afa á Íslandi var algjört ævintýri og mjög gaman. Enda var hann alltaf úti, bæði út í garði eða úti á róló. Svo fór hann endalausa hafnarrúnta með afa að sjá gröfur og lyftur (lesist: krana), henda steinum í vatnið og rota endur, og með ömmu og Tótu móðu í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn. Nóg að gera hjá ungum manni. Þannig að hann saknaði foreldra sinna ekkert, þau voru bara að sofa. Miklu einfaldara að útskýra fjarveru þeirra þannig, það að þau væru á Ítalíu var of flókið! Hann var samt glaður að sjá okkur aftur.

Núna höfum við komið okkur vel fyrir hjá ömmu Síu og verðum þar fram til 24. júní. Endilega leggið inn pantanir fyrir hittingum, hlökkum til að sjá ykkur öll!

miðvikudagur, júní 14, 2006

Komin heim í stutt stopp

Við erum komin heim úr fríinu og netið loksins komið aftur í lag!

Fríið var alveg æðislegt í alla staði, ég á enn eftir að bæta við nokkrum póstum með ferðasögum. Amalfi ströndin var geggjuð upplifun, Positano og Amalfi stóðu alveg fyrir sínu. Þá áttum við blautan og skondinn dag í Pompeii að skoða gamalt grjót - flott grjót samt! Lentum þar í heví rigningu svo það mátti vinda okkur eftir skúrinn, en við komumst að því að Rómverjarnir voru bara þó nokkuð góðir verkfræðingar. Svo vorum við bara í leti í Sorrento og könnuðum bæinn gaumgæfilega, lágum í leti á svölunum okkar og nutum þess að lesa bækur og sötra drykki með útsýni yfir Vesúvíus og Napólíflóann. Bara yndislegt líf í alla staði.

Núna erum við í 1 og hálfsdags stoppi í Brussel, þvottavélin búin að vera í yfirvinnu síðan við komum inn úr dyrunum og stöndum í því að pakka aftur niður í tösku. Það var skondið að koma aftur til Brussel, við fórum frá Ítalíu úr sirka 22-25 stiga hita og svölum kvöldum, yfir í 30 gráðu mollu hér í Brussel! Erum að kafna úr hita!!! Maður átti ekki von á því að hitinn hækkaði eftir því sem við færum norðar í álfunni! En svo komum við nú á Klakann á morgun og munum kæla okkur rækilega!

Hlakka til að sjá ykkur sem flest á Klakanum!

P.S. Ég setti inn það litla af myndum sem var tekið í maí, frá því að amman og afin voru hérna að hjálpa til við flutningana. Við reyndumst vera of upptekin við annað en að taka myndir!
Svo bíða sirka 250 myndir frá brúðkaupsferðinni eftir því að vera sorteraðar og settar inn!

fimmtudagur, júní 08, 2006

Ljufa lifid i Sorrento

Vid hofum tad vodalega ljuft herna i Sorrento, enda er ekki mikid GERT i tessum bae, folk er adallega i tvi ad VERA. Bara vera til og njota lifsins virdist vera motto heimamanna, enda hafa teir fullkomnad "il dolce far niente" i margar aldir, med tryggri adstod ferdamanna. Og Sorrento er ekki tessi yfirgengilegi ferdamannastadur tott hann geti verid tacky, enda hafa ferdamenn verid a tessum slodum svo hrikalega lengi.

Vid vorum nu voda dugleg i gaer og skelltum okkur yfir til Capri. Og tvilik fegurd, torpid hvilir inn a milli kalksteinsklettanna og allsstadar vaxa blom og plontur. Tad var audvelt ad skilja hvers vegna svo morg meistaraverk hafa ordid til a tessum slodum! En tad var erfidara ad skilja hvernig teir keyra bila um eyjuna. Ein gata liggur fra baenum Capri upp til Anacapri sem liggur ofar a eyjunni og er su ekki meira en einbreid, full af beygjum og krokum, og fyrir nedan er hengiflug ofan i sjo! Samt var tvilik traffik, bilar maetast og taka fram ur! Puff! En vid hofdum tad af. Capri var mjog mannfraedileg upplifun, tvi tarna koma hinir riku og fraegu til ad turistast. Vid saum nu engan en budirnar i baenum voru sko ekki af verri endanum, Prada, Versace og allir hinir, asamt skartgripabudum og svo einstoku tacky ferdamannashoppu! Yndislegur grautur. Og verdin eftir tvi....

Eftir letidag i dag tar sem sofid var frameftir og svo setid a svolunum yfir bok og siddegisdrykk, er aetlunin ad heimsaekja sjalfa Amalfi-strondina. Tad er nu reyndar ekki mikil strond, einkennist af klettum i sjo fram og torpum sem hanga a bjargbruninni, en tetta a ad vera einn af fegurstu stodum jardrikis! Ad keyra tessa leid er vist skrautlegt enda aetlum vid bara med rutu og lata itolunum eftir keyrsluna. Vegurinn kallast "vegur hinna 1000 beygja" og er tad vist aevintyri likast ad maeta odrum bilum. Kemur allt i ljos, vid munum reporta ad loknu aevintyrinu. En tilgangurinn er ad sja tessa paradis a jordu, heimsaekja hid lodretta torp Positano, skoda Amalfi sjalfa og hver veit hvad annad dagurinn mun bera i skauti ser.

þriðjudagur, júní 06, 2006

Erum i frii!

Vid hofum verid lot ad blogga undanfarid enda nog verid ad gera, flutningar og annad skemmtilegt. Flutningarnir tokust vel, fengum frabaert flutningafyrirtaeki til ad flytja fyrir okkur og svo voru mamma og pabbi horkudugleg vid ad hjalpa okkur ad taka upp ur kossum og koma okkur fyrir. Tad eina sem komst ekki strax i lag var netid, en tad tok sma tima ad koma tvi i gang. Nyja husid er alveg brill og okkur lidur strax eins og vid eigum heima tar. Yndislegt ad sitja i eldhusinu og horfa ut i gardinn a medan madur bordar morgunmatinn eda kosast i stofunni med ljufa tonlist.

Eftir pud-viku foru svo mamma og pabbi aftur heim til Islands og toku Kjartan med ser. Hann er tar i godu yfirlaeti og er ad upplifa mikil aevintyri. Og fyrst vid erum barnlaus notudum vid taekifaerid og skelltum okkur i brudkaupsferd! Tessi ord eru skrifud i Sorrento a Italiu, en her verdum vid i ruma viku og erum strax farin ad njota ljufa letilifsins sem fylgir tessum stad, enda fundu Romverjarnir upp letilifid herna fyrir 2000 arum! Tetta er lika algjor paradis fyrir matfolk eins og okkur, enda tykjast heimamenn hafa fundid upp tad helsta i itolsku eldhusi, pasta, is og fleira. En maturinn er godur! Sitronur og olivutre vaxa her ut um allt, sitronuilmurinn liggur yfir ollu enda er sitronubragd af olifuoliunni. Vid hofum notad okkar gourmet-nef og fundid nokkra goda veitingastadi og isbudir. Forum eflaust rullandi heim! Og ekki er hotelid af verri endandum, voda kosi med utsyni yfir Napoli-floann og Vesuvius. Naestu daga er aetlunin ad heimsaekja Capri, Amalfi-strondina og Pompeii, en annars bara liggja i leti, gera ekkert og smakka allar 50 bragdtegundirnar i isbudinni sem vid fundum i dag.

Bestu kvedjur i bili,
Ella og Hrafnkell

mánudagur, maí 22, 2006

Gleði!

Á þessu heimili ríkir mikil gleði þessa dagana. Auðvitað júróvisjón gleði yfir því að Lordi skyldi vinna Söngvakeppnina. Það var nú bara snilld. En maður trúði því nú varla samt! En ég endurheimti trú mína á Evrópubúum að kjósa frekar Lordi en Carolu. Þá hefði ég nú sagt mig úr Evrópu!!!!

Þá eru allir mjög glaðir því amma og afi eru komin í heimsókn. Þau mættu galvösk á laugardaginn, eftir smá ævintýri. Það var nefnilega ekki bein lest til Brussel, og í stað þess að láta þau þvælast í rútum og lestum þvers og kruss um Evrópu, skelltum við okkur í bíltúr og sóttum þau til Breda. Hins vegar lentum við í því að villast í Breda og vorum örugglega hálftíma að leita að lestarstöðinni. En við fundum hana að lokum og ömmu og afa, svo allt fór vel!
Kjartan er svo kátur að hafa ömmu og afa hjá sér. Hann fær auðvitað þvílíka athygli, plús að amma og afi eru mjög dugleg að leyfa honum að vera með í öllu. Þeir afi eru alltaf úti, fara í göngutúra og leika. Hér í hverfinu er sirkus og þeir fara þar framhjá daglega, heilsa upp á dýrin og Igor kraftajötun. Og það er ótrúlegt hvað málþroska barnsins hefur farið fram á þessum dögum sem amma og afi eru hérna. Núna talar hann mikið um hvað afi, amma, pabbi, mamma eða Kjartan eru að gera. "Afi sova", "mamma stutu (sturtu)", "pabbi stýa (stýra)" og svo framvegis. Í morgun kom hann inn alveg andagtugur yfir því að hafa séð "tíisdí" (tígrisdýr). Ég hugsa að framfarirnar verði enn meiri eftir heilan mánuð á Íslandi!

En hér á bæ ríkir líka mikil framkvæmdagleði. Við erum að mestu búin að pakka dótinu okkar í kassa, það er bara eftir þetta dót sem maður er að nota fram á síðustu stundu, plús allt sem er brothætt en því pakka flutningakarlarnir inn. Svo er amman (og mamman stundum, þegar hún má) með tuskuna á lofti, að sjálfsögðu með aðstoð yfirþrífarans Kjartanas. Og afinn er að sparsla í holur og bletta, taka sundur skápa og bara yfirhöfuð leika sér með borvélina. Að sjálfsögðu þarf Kjartan líka að hjálpa afa, svo það er ansi mikið að gera hjá ungum manni. Við erum á góðri leið með þetta alltsaman og hlökkum bara til þegar flutningarnir verða yfirstaðnir og við getum farið að koma okkur fyrir á nýjum stað!

föstudagur, maí 19, 2006

Júróvisjón

Við Hrafnkell skemmtum okkur konunglega við að glápa á júróvisjón í gærkvöldi, engin pökkun, engin eldamennska, bara pantaðar pizzur frá Barchetta og legið yfir glamúrgleðinni! Silvía var flott á sviðinu en ekki komst hún áfram, enda bjóst maður nú ekki við því. Belgíski kynnirinn var frekar klúless, skildi ekkert í því af hverju hún var púuð niður þegar hún gekk á sviðið... var greinilega ekkert að fylgjast með látunum í kringum "dívuna" og hann var samt á staðnum! Svo af hverju ætti Evrópa að fylgjast með henni??? Jamm, en samt gott hjá Íslendingum að gera grín svona einu sinni, í stað þess að taka þessu alltaf svona alvarlega!
Brilliant að Finnarnir komust áfram, mér fannst þeir mest töff og mun styðja þá á laugardaginn. Svo fannst mér Litháarnir alveg brill. Svona á að gera þetta! Vona að þeir komist langt. Sama jókið og Spaugstofan var með um árið í laginu "Þetta er Júróvisjónlag...". Svo voru þarna ýmis falleg lög, ég var mjög hrifin af Bosníska laginu, Makedóníu og Albaníu. Ánægð með að Bosnía og Makedónía komust áfram. Þá var auðvitað hellingur af meðalmennsku júró-trashi, eitthvað um ABBA-eftirhermur og nokkur ælupokalög. Ég skil t.d. ekkert í því að Rússland og Úkraína hafi komist áfram, hrikalegt! Tyrkland var líka hrikalegt, einhver stíf, meikdollu gerviljóska sem gat varla sungið með herfilegt lag! Og hún komst áfram. Carola hin sænska fór auðvitað áfram á fornri frægð. Maður átti samt alveg von á því að hún fyki af sviðinu! Enn í sama eitís gallanum að syngja seventís lag, ekki fyrir minn smekk takk. Ælupoka!!! Og svo þurfti maður virkilega á insúlíni að halda eftir írska lagið! Vá, íks! Og svo Armenía. Var það meðaumkunarkosning af því þeir voru með í fyrsta sinn??? Ég skildi fæst lögin sem komust áfram, hefði frekar viljað sjá Belgíu, Holland, Pólland og Albaníu í þessum hópi. Held ég kommenti ekkert á restina, þau stóðu fæst upp úr. Nokkur lög sem höfðu alveg möguleika að verða flott, en voru einhvern vegin svo flöt. En það er gaman að showinu, glansinum og glamúrnum. Kemur mér ekkert á óvart að 70% gesta séu gay karlmenn, þetta er eitt heljarinnar glans, glam og dragshow! Gleði!

En kynnarnir voru hræðilegir. Karlinn varla talandi á enska tungu, hvað þá á frönsku, og svo þessi ameríska grískættaða Miss Minnesota eða hvað það nú var! Hræðileg! Hlakka til að heyra Terry Vaughan hakka þau í sig á laugardaginn. Því miður sendi BBC ekki út frá showinu í gær svo við urðum að gera okkur belgíska kynninn að góðu, en það verður sko horft á showið með Terry á laugardagskvöldið! Hlakka svo til að sjá showið á laugardaginn, mér sýndist að þar væru ýmsir góðir bitar!

Áfram Lordi!

fimmtudagur, maí 18, 2006

Pakka pakka pakka!

Svona lítur heimili okkar út þessa dagana, allt á kafi í kössum! Mér finnst við ekki gera annað en að pakka og undirbúa flutninga. Það er kannski ekki alveg rétt, ég hef nú verið dugleg að taka mér pásur og gera annað, og Hrafnkell er allan daginn í vinnunni. En kassarnir eru bara búnir að vera hérna svo lengi.... Í gærkvöldi tókum við okkur til og vorum voða dugleg við að pakka niður bókum og fleiru á skrifstofunni. Gestaherbergið er að verða tómt og þá er svona það mesta komið sem hægt er að pakka fyrirfram. Svo þetta gengur bara alveg ágætlega.
Hins vegar kemur mér á óvart hvað það er mikil vinna í því að græja ýmis mál, flytja símann og netið, breyta heimilisfangi, græja uppgjör á gasi og rafmagni og allt það. Plús að koma gamla húsinu í stand. Við þurfum t.d. að láta gera árlegt check á kyndingunni, láta fægja skorsteininn, setja gardínur í hreinsun og fleira slíkt! Svo þegar húsið er orðið tómt þurfum við að koma því í stand, sparsla í göt, jafnvel mála og þrífa allt frá toppi til táar. Svo það er nóg vinna framundan.

En eftir dugnaðinn í gær tók ég kaffihúsapásu með stelpunum í morgun og skellti mér svo niður í sendiráð að kjósa. Ætlaði nú ekki að nenna því en Hrafnkell kom mér af stað með frasanum: "Viltu að framsókn komist inn í borgina???" Hehe, þurfti ekki meira á mig, svo ég gerðist aktífur borgari og kom atkvæði mínu til skila! Svo eru meiri kosningar framundan, fylgjast Júróvisjón í kvöld, sjá hvernig furðudýrinu Silvíu Nótt gengur og öllu því gengi! Held samt ég styðji Finnana, mér finnst þeir brill!

miðvikudagur, maí 17, 2006

Afmælishelgin

Humm, afmælið mitt er víst löngu búið, svo það er betra að færa þessa afmælisfærslu neðar!

Afmælishelgin var alveg yndisleg. Á föstudagskvöldið kom Valérie að passa Kjartan og við Hrafnkell fórum út að borða. Sæti bauð mér á veitingastaðinn hjá henni Marie (reyndar heitir kokkurinn Lilian, humm???), lítinn sætan stað í Ixelles, þar sem við fengum alveg hrikalega gott að borða og ljúft vín með. Reyndar var það svekkjandi að geta ekki notið vínlistans betur! Staðurinn hefur mjög góðan sommelier og vínlistinn var 10 sinnum lengri en matseðillinn! Þegar óléttar konur eru með í ferð verður Hrafnkell að sætta sig við hálfflöskur, það voru sirka 5 í boði!!! Svo við höfum ákveðið að fara aftur á þennan stað eftir að Leopold er komin í heiminn og hreinlega taka leigubíl heim!!!!

Á laugardagsmorgun vaknaði ég svo hrikalega snemma og tölti á lestarstöðina. Þar hittumst við 7 skvísur og héldum í'ann til Antwerpen. Í lestinni dró Helga Ferd. freiðivín upp úr tösku sinni svo það var skálað á leiðinni og hópurinn hrisstur saman. Í Antwerpen stukkum við strax af stað í búðir og fyrir hádegismat voru flestar komnar með poka. Í hádeginu sátum við svo úti í sól og blíðu, fengum gott að borða og þær ekki-óléttu sötruðu hvítvín. Eftir hádegismat var svo haldið áfram í shopping... við gerðum það okkur til skemmtunar að fara í design-búðirnar og slefa yfir fötum sem kosta sirka 10x meira en maður er vanur að borga! Duttum svo inn í alveg frábæra second hand kjólabúð þar sem stelpurnar skemmtu sér konunglega við að máta kjóla! Smám saman hurfu ein og tvær í pedicure, manicure eða spaið. Um kvöldið var svo farið út að borða á Lux, einn mesta trendí staðinn í Antwerpen þessa dagan. Þar fengum við að sjálfsögðu gott að borða og skemmtum okkur konunglega.

Á afmælismorguninn sjálfan fékk ég svo að sofa út.... Mikil gleði! Eftir langan og ljúfan morgunmat/brunch héldum við svo aftur af til Brussel. Ætlunin var að kíkja aðeins í búðir áður en við héldum í bæinn, nema þá kom í ljós að þeir hafa ekki opið á sunnudögum eins og við héldum.... Kannski sem betur fer fyrir vísakortin! En til Brussel vorum við komnar um 1-leytið, eftir skemmtilega ferð til Antwerpen.
Kjartan og Hrafnkell komu að sækja mig á lestarstöðina, og eftir stutta kveðjustund héldum við heim á leið. Við tókum því bara rólega heima, sötruðum kaffi á meðan Kjartan lúrði og höfðum það huggulegt. Hrafnkell eldaði svo fyrir mig ljúfan kvöldmat, geitaostssalat í forrétt og sole meunière í aðalrétt. Ég kjaftaði reglulega í símann við vini og ættingja og naut þess að eiga tíma með strákunum mínum! Góð afmælishelgi!

sunnudagur, maí 14, 2006

Afmælisdagur

Ég á afmæli í dag,
ég á afmæli í dag,
ég á afmæli í dag,
ég á afmæli í dag!!!!!!

föstudagur, maí 12, 2006

Maísól

Hér er enn einn sólardagurinn. Af því tilefni setti ég inn nokkrar sólarmyndir frá maí.

Þrátt fyrir sólina verður maður víst að vera duglegur því það styttist í flutnina. Teljarinn segir hvenær amma og afi koma hingað og 4 dögum seinna flytjum við! Þegar flutningakarlarnir mæta 24. maí er eins gott að vera búin að pakka niður öllu því sem er ekki brothætt, þ.e. bækur, geisladiskar, dótið úr geymslunni, úr fataskápnum og fleira. Það er alveg merkilegt hvað þetta er drjúgt! Ég tók góða syrpu á miðvikudaginn, er næstum búin með bókaskápinn í gestaherberginu, sem tók dágóðan tíma! Samt á ég enn eftir alla skrifstofuna! Á svona tímum skilur maður ekki þessa bókaáráttu í manni, að vera alltaf að safna fleiri og fleiri bókum! En ég verð aftur ánægð með bækurnar mínar þegar þær verða komnar á sinn stað í nýja húsinu. Ég er líka byrjuð á geymslunni og að sortera fataskápinn svo þetta er nú allt á góðri leið! Hef ennþá rúma viku... og svo fáum við nú góða aðstoð! Síðan er garðurinn eftir.... flödeskúm!

En helgin verður nú með rólegasta móti í pökkun, enda afmælishelgi!! Í kvöld ætlar maðurinn minn að bjóða mér út að borða á Chez Marie, lítinn kósí stað í Ixelles sem er prýddur einni Michelin-stjörnu. Og maður þarf að panta borð með GÓÐUM fyrirvara því á staðnum eru víst ekki fleiri en 8-9 borð! Hlakka til. Í fyrramálið ætla ég svo að skondrast karlmannslaus og barnlaus með nokkrum skvísum í skvísuferð til Antwerpen. Ætlunin er að versla, borða góðan mat og fara í dekur. Búið er að bóka fyrir okkur borð á voða fansí stað á kajanum í Antwerpen annaðkvöld, en áður en við mætum þangað verðum við búnar að bræða vísakortin og leggjast í dekur! Ekki amalegt! Á meðan ætla þeir feðgarnir að hafa það gott saman, halda pylsupartí og gera það sem strákar gera þegar þeir losna við kvenmanninn af heimilinu. Feðgarnir ætla svo að sækja mig í lestina á sunnudaginn og þá á að gerum við eitthvað skemmtilegt og notalegt saman. Þeir ætla að elda og hver veit hvað við gerum annað! Verður fjörug helgi!

miðvikudagur, maí 10, 2006

Dadan

Dadan er það orð sem Kjartan notar mest þessa dagana. Getið þið ekki giskað á hvað það þýðir? Einmitt, það er Kjartan!
Þar sem Kjartan er á miklu sjálfstæðisskeiði þessa dagana þá passar þetta saman, Dadan þetta og Dadan hitt, því allt vill hann fá að gera sjálfur. Meira að segja þegar hann hefur ekki fengið að gera hlutinn sjálfur þá vill hann "spóla til baka" og byrja upp á nýtt. Fer aftur upp stigann og labbar aftur niður EINN ef mamman gafst upp og hélt á honum niður í fyrra skiptið, eða heimtar að lokið sé sett aftur á jógúrtdósina ef ég gerðist svo frökk að taka hana sjálf af. Því Dadan þarf allt að gera sjálfur!

En málþroskinn hefur tekið stórstígum framförum og orðaforðinn eykst á hverjum degi. "Mamma" og "pabbi" er auðvitað mikið notað, og þá sérstaklega í aðstæðum þar sem hann er óánægður með annan þjónustuaðilann, þá er minnst á hinn! Ef mamman er að skamma hann of mikið þá heyrist í litlu manni: "Pabbi?"
Og fjölmörg orð eru reglulega notuð: "Rúda" er notað yfir alla stóra bíla og trukka, meira að segja strumpastrætóar eru kallaðir rútur og foreldrarnir tísta af hlátri í laumi, "gaggar" eru krakkar og fleiri og fleiri. Það hefur komið mér á óvart hvað hann notar mikið af smáorðum eins og "þessi", "þennan", "annan", "aftur" o.s.fr. í staðin fyrir að byrja á nafnorðunum. Ég þarf greinilega að lesa mér meira til um málþroska barna, hélt alltaf að þau byrjuðu á nafnorðunum. "Sjáu" (sjáðu) er líka mikið notað, "meia" (meira) og "atu" (aftur). Svo eru sagnir farnar að bætast í hópinn, "ýta" (þegar við erum að róla þarf mamma að ýta honum), "susta" (hlusta) og fleiri. "Kúka" er óspart notað þegar eitthvað er komið í bleyjuna sem litlir menn vilja losna við. Og hann er farinn að setja saman nafnorð og sagnir. "Pabbi susta" heyrðist hér í gær þegar pabbi hans var að hlusta á tónlist og "Dadan susta" þegar hann vill hlusta á sína tónlist, en það verður að vera annaðhvort Hrekkjusvínin eða Eniga Meniga, annað neitar hann að "susta" á. Fyndnast í heimi er samt þegar hann er að syngja, trallar og trallar og inn á milli má greina orð á stangli. Í fyrradag var ég að skipta á honum og þá trallaði hann og trallaði og inn á milli mátti greina "mamma", "Dadan" "kúka", svo söngurinn fjallaði augljóslega um það að mamma væri að skipta á litlum snáða eftir að hann gerði í bleyjuna!
Það er ótrúlega gaman að fylgjast með litlum snáða í þessum frumskógi tungumálsins og hvaða framförum hann tekur. Hann apar alveg ótrúlegustu orð eftir manni og er stundum strax farinn að nota þau. Skondið atvik í Lyon um daginn minnti okkur á að nú þarf maður að passa sig á því hvað maður segir. Við gengum fram hjá búðarglugga þar sem stillt var upp jakkafötum og bleikum skyrtum. Hrafnkell nefnir að bleikar skyrtur séu nú bara fyrir ítalska karlmenn og homma. Heyrist þá ekki úr kerrunni: "Homma"!!! Svo nú er eins gott að passa sig!

mánudagur, maí 08, 2006

Pökkun

Kassarnir komu í morgun, svo nú get ég farið að pakka. Nema ég er ekki búin að pakka í neinn kassa ennþá!! Algjör haugur! Kem mér ekki í að byrja. Við ætluðum nú að byrja í gær og ráðast á skápana í geymslunni nema Hrafnkell var slappur og ég eyddi hálfum deginum með bókaklúbbnum mínum, 5 eldhressar og kjöftugar gellur að hittast og borða lakkrís. Og ræða bækur, að sjálfsögðu!! Svo öll okkar duglegheitaplön á þessum sunnudegi fóru í vaskinn!!

Svo er litla krílið mitt orðið lasið. Fóstran hringdi í hádeginu en þá hafði hann ælt hádegismatnum sínum yfir matarborðið á crèchinu. Litla greyið! Svo ég fór og sótti hann. Nema ég held að hann sé ekkert mjög lasinn, hann var frekar svangur þegar hann kom heim, heimtaði bæði jógúrt og banana og hélt báðu niðri. Svo sofnaði hann og sefur enn... Kemur allt í ljós með tíð og tíma. Nema hann verður heima á morgun, Isabelle fóstra vill ekki fá hann of snemma til baka bara til að passa að hann smiti nú ekki hina krakkana. Svo hann verður bara með í því að hjálpa mömmu sinni að pakka! Held honum eigi eflaust eftir að þykja það skemmtilegt.

Í letikasti mínu í morgun setti ég inn restina af öllum myndum frá apríl inn á myndasíðuna. Endilega kíkið á þær, sætar garðmyndir og myndir frá útskriftinni!

Ciao í bili... nú skal ég byrja að pakka!

föstudagur, maí 05, 2006

Sól og sumar

Oh, hér er búið að vera yndislegt veður síðustu daga. Um leið og langa helgin var búin, stytti upp og hitinn hækkaði. Í gær og fyrradag hefur hitamælirinn sýnt tölur í kringum 30 stigin, enda er búið að draga fram sumarfötin, og eins og þið sjáið af fáum bloggum, höfum við verið úti að njóta sólarinnar.

Með hækkandi hita þá á ég orðið í svolítið skondnum vandræðum með Kjartan. Litla tískudrósin mín vill nefnilega ekki ganga í hvaða fötum sem er og allt þarf að vera í föstum skorðum. Hann er ekkert mikið fyrir ný föt, vill helst vera í sömu gömlu góðu fötunum. Hann hefur það ekki frá mér!!! Nema, þetta hefur verið allt í lagi, þar til núna. Í nærri 30 stiga hita er barnið að kafna í þykkum gallabuxum og langermapeysum! En ekki að ræða það, hann fer ekki í stuttermaboli og ekki reyna að sýna honum aðrar buxur, hvað þá stuttbuxur!!! Við fórum á róló á miðvikudaginn eftir crèche og allir krakkarnir þar voru komin í létt sumarföt, nema Kjartan. Og hann meira að segja neitaði að fara inn á róló nema vera í ÚLPUNNI sinni!!! Barnið var í úlpunni á róló í 30 stiga hita!! Allar hinar mömmurnar á staðnum bentu mér á þetta og höfðu miklar áhyggjur af barninu, hvað ég væri nú að gera því! Það tók mig korters fortölur að koma barninu úr úlpunni! Fóstrurnar á crèchinu báðu okkur líka að klæða hann í léttari föt þegar væri svona heitt svo það var gerð tilraun í morgun. Ég kom honum í stuttermabol í morgun, en það var ekki með góðu. Hann skældi og grét í 20 mínútur í morgun og fór ítrekað upp aftur að sækja sér nýjan LANGERMA bol!!! Að lokum tókst mér að sannfæra Kjartan, enda mynd af fínum bíl framan á bolnum, en ég lagði ekki í að tækla buxurnar í þetta sinn.... En hvort þetta sé nóg til að hann samþykki stuttermaboli efast ég um!

Annars er nóg að gera þessa dagana, við erum á fullu að undirbúa flutninga. Erum að ganga frá fyrirtæki til að flytja fyrir okkur, þá munum við fá kassa svo við getum farið að pakka. Þangað til bíður geymslan eftir okkur, taka til, henda og flokka. Samt eru þetta bara 2ja ára uppsöfnun í geymsluna!! Svo er það garðurinn, gera hann fínan áður en við skilum af okkur, klippa hekkið í síðasta sinn!!! Og selja IKEA skápinn góða, svo ef ykkur vantar rúmgóðan og patent IKEA skáp endilega hafið samband!

miðvikudagur, maí 03, 2006

Rigningarhelgi

Þessi helgi varð dálítil leti-innipúkahelgi enda rigning mest allan tímann. Að vísu byrjaði helgin nú með trompi, útskrift og læti eins og þið fenguð nú að vita! Um kvöldið fórum við svo út að borða á voða góðan ítalskan stað með Óla og Laurence og skáluðum fyrir ýmsum tilefnum, eins og útskriftinni og útgáfu á mastersritgerðinni hans Óla.

Laugardagurinn fór svo bara í afslöppun og leti. Hrafnkell fékk að sofa út á meðan við Kjartan skriðum snemma niður, lékum okkur og höfðum það notó. Svo skelltum við okkur á markaðinn og keyptum í matinn, heimsóttum grænmetiskonurnar, slátrarann og fisksala. Alltaf gaman á markaðnum, sérstaklega að kaupa 2 úttroðna poka af grænmeti og borga 8 evrur fyrir!!! Restin af deginum fór svo bara í leti, bæði innan dyra og utan. Við Kjartan sváfum nú af okkur eftirmiðdaginn, svo það var seint tekið til við eldamennskuna. Dunduðum okkur við að útbúa borra (f. daurade) í Salsa verde sem virkaði bara svakalega vel og höfðum það svo bara gott á meltunni.

Sunnudagurinn var dagur 2 í leti. Þá fékk ég að sofa út og þeir feðgarnir fóru niður að dunda sér. Kjartan entist víst stutt í garðinum og var dottinn í Bangsímon þegar ég vaknaði. Eftir kaffi og helstu morgunverk afrekuðum við að panta okkur brúðkaupsferð! Ætlum að skella okkur til Ítalíu og fare niente í Sorrento í rúma viku. Vesúvíus, Pompei, Capri, Amalfi-ströndin og Napólí ! Sól og letilíf! Jei!! Eilíf gleði! Lágum á netinu, fundum ódýrt flug til Napólí (viva Virgin Express) og leituðum svo að næs hóteli með aðstoð TripAdvisor. Klikkar aldrei! Þótt ætlunin hafi verið að labba inn á eina ferðaskriftstofuna niðri á torgi og finna okkur góðan díl, þá bara kunnum við ekki að ferðast svoleiðis. Liggur við að ég fái hroll þegar ég labba inn í slíkar stofnanir, sérstaklega þegar þeir fara að bjóða "allt innifalið" díla. Hvað er hrikalegra en að hanga á sama hótelinu allan tímann og borða ALLTAF á hótelinu!! Ég skil ekki svoleiðis... svo netið er minn besti vinur í ferðalagaplönum...
Seinnipartinn, þegar það var orðið fullljóst að Kjartan vildi ekki taka lúr, skelltum við okkur í kaffi til Helgu og Sigurjóns. Það svignuðu borð undan kökum og kruðeríi, við skvísurnar gátum rætt óléttur og barneignir og karlarnir röbbuðu um flutninga og vínkjallara á meðan Kjartan tók ýmislegt í sundur! Eftir góðan eftirmiðdag var svo haldið heim í lasagna og meiri leti.

Okkur til mikillar gleði var löng helgi og þrátt fyrir mikil áform um udflugt þennan auka-helgi-dag, vorum við of löt í rigningunni. Kjartan fór nú bara í pollagallanum út í garð, þar sem hann sullaði í vatni og drullu og skemmti sér konunglega. Seinnipartinn, eftir aðra misheppnaða lúr-tilraun, héldum við svo í sund og skemmtum okkur konunlega. Það tók nú smá tíma fyrir lítinn gutta að venjast vatninu og þessu vatnssulli, enda hefur hann ekki farið oft í sund. En að lokum var þetta orðið mjög gaman og hann vildi helst ekki fara upp úr. Lítill stubbur endaði svo á því að steinsofna í bílnum svo við tókum smá rúnt á leiðinni heim til að leyfa honum að hvílast aðeins. Heima beið svo lasagna og videogláp.

Sem sagt algjör letilífs-familíuhelgi, enda þarf að byrgja sig upp af þeim. Næstu helgar munu fara í undirbúning fyrir flutninga og því lítið um letilíf framundan fyrr en í júní!!!

mánudagur, maí 01, 2006

Litli verkfræðingurinn

Það er ótrúlegt hvað Kjartan hefur mikið verksvit þótt hann sé bara 2ja ára. Hann er svo fljótur að finna út úr hlutunum og vita hvað hann þarf að gera. T.d. bara að sækja sér stól til að ná upp í eitthvað sem er of hátt uppi eða finna út úr því hvernig á að taka hluti í sundur. Í heimsókn hjá Helgu og Sigurjóni í gær tókst honum t.d. að skrúfa hluta af skráargati af, okkur fullorðna fólkinu hefði ekki dottið í hug að það væri yfirhöfuð hægt!! Og svo vorum við heillengi að koma því aftur á!!!
En foreldrarnir voru mjög stollt í gær. Ég kom inn í stofu þar sem Kjartan var búinn að vera heillengi að bardúsa og sá að hann var búinn að dunda sér við það að leggja niður teinana fyrir Brio-lestina sína, og alveg sjálfur tókst honum að leggja hana í hring!! Ég hélt reyndar fyrst að Hrafnkell hefði hjálpað honum við þetta, en nei, litli stubbur hafði setið og dundað við þetta einn. Ætli hann verði ekki verkfræðingur einn daginn???

Súperman Grímsson

Við vildum óska vinum okkar Helgu Hrönn og Grími innilega til hamingju með litla soninn sem fæddist á laugardagskvöldið, fimm mínútum yfir sex. Stór og myndarlegur að sjálfsögðu, eins og hann á kyn til, 4215 gr og 53 sm. Innilega til hamingju!!!
Við bíðum spennt eftir myndum!

laugardagur, apríl 29, 2006

Útskrift

Ég útskrifaðist formlega frá Boston University Metropolitan College - Brussel í gær við hátíðlega athöfn! Þvílík formlegheit, með flata hattinn, dúskinn og skikkjuna og tók við skírteininu úr hendi rektors BU School of Management, Dean Michael Lawson, sem kom alla leið frá Boston til að útskrifa okkur. Athöfnin var voða formleg, með allt kennaraliðið, skólastjórann og alla dubbaða upp í viðeigandi búninga (mætti halda að maður væri í Hogwarts) en samt öll á léttu nótunum, svo þetta var voða gaman! Það var tekinn slatti af myndum en því miður var myndavélin okkar litla ekki að höndla ljósaskilyrðin á staðnum svo allar myndirnar eru frekar óskýrar! Því miður. En ég set hingað inn eina af mér að taka við skírteininu góða úr hendi rektorsins og svo eina af öllum útskriftarhópnum (eða þeim sem mættu í útskriftina) ásamt Deborah skólastjóranum okkar og áðurnefndum Dean Lawson.


Svo var gott partý á eftir! Kampavín og allskyns snarl og gúmmelaði. Mikil gleði og mikið gaman. Við létum okkur svo hverfa með fyrra fallinu, sirka kl. 7, en gleðin hefur eflaust haldið áfram fram eftir kvöldi.

Kjartan hegðaði sér vel alla athöfnina, leist nú ekkert á þetta í byrjun og þekkti svo varla mömmu sína í múnderingunni! Varð hins vegar voða glaður þegar hann fattaði hver þetta var undir hattinum.

fimmtudagur, apríl 27, 2006

Skóli fyrir Kjartan

Jedúdda mía! Ég var að skoða skóla fyrir Kjartan, en hann á að byrja í skóla í haust. Litla barnið mitt að verða stórt! Fæ alveg í magann við tilhugsunina að Kjartan sé að fara í skóla, mér finnst hann ennþá svo lítill. En svona er víst kerfið hér og maður bara fer eftir því.

En ég fór sem sagt áðan og hitti skólastjórann í litlum skóla sem er rétt hjá nýja húsinu okkar. Myndin er einmitt frá skólanum. Í raun er þetta ekki eitt stórt steypt hús, heldur fullt af litlum húsum sem eru staðsett í miðjum litlum garði, allt voða kósí og sætt, og mjög svo þægilegt andrúmsloft. Ég hitti líka kennarann sem sér um minnstu börnin og fékk að sjá svona það helsta sem þau eru að bralla, en fyrir utan tímana hjá kennaranum þar sem þau eru að leika, lita, mála, föndra og gera ýmislegt skemmtilegt, þá gera þau ýmislegt fleira í minni hópum. Það er t.d. leikfimi, dans, og músík. Svo koma "ömmur og afar" úr hverfinu reglulega og lesa fyrir þau og margvíslegt fleira í boði. En mér leist bara vel á, andrúmsloftið þægilegt og "familiale", þótt húsnæðið væri kannski ekki nýjasta nýtt. Svo nú þarf ég að fara í það að safna saman allskyns pappírum, heimsækja kommúnuna okkar og fá einhver vottorð, og fleiri formlegheit. Svo á ég deit með skólastjóranum í næstu viku til að skrá Kjartan formlega í skólann! Gúlp!

miðvikudagur, apríl 26, 2006

Róló

Í góða veðrinu í gær komum við Kjartan við á róló og skemmtum okkur konunglega. Á meðan stubbur dundaði sér við að leika, príla í kastalanum, renna sér, moka sand og fleira skemmtilegu, fór mamman á flipp með myndavélina. Eina mamman sem eltir barnið sitt út um allan róló með myndavél á lofti! Hér eru nokkrar vel valdar.

Kjartan er algjör klifruköttur og nú orðið vill hann frekar klifra í þessum kaðalstiga heldur en upp venjulega stigann. Hann er ótrúlega kaldur og flinkur að klifra upp, fipast örsjaldan. En mamman heldur sig samt MJÖG nálægt ef ske kynni....

Ein stelpan hafði tekið með sér sanddót á rólóinn (eitthvað sem þessi mamma gleymir alltaf) og Kjartan var svo heppinn að fá lánaðar skóflurnar hennar. Hann var mjög iðinn við að moka og moka sandi, og sandur var settur á allt, rennibrautina, rólurnar, skóna hennar mömmu og kerruna. Svo aðstoðaði hann sanddótsdömuna við að moka ofan í holur. Að vísu vildi litla skvísan moka UPP úr holunni, en Kjartan var ekki alveg sáttur við þessa holugerð og var iðinn við að setja sandinn AFTUR í holuna. Frekar skondið að fylgjast með þeim tveim, ég og pabbi stelpunnar skemmtum okkur konunglega yfir þessu!

Alveg óvart uppgötvaði Kjartan nýja leið til að renna sér niður rennibrautina: Á maganum!! Og honum þótti það svo skemmtilegt að hann fór óteljandi salibunur á maganum og þurfti ég að klappa fyrir honum í hvert skipti!!!

Sem sagt, stuð á róló!

Brosa svo

Prúðuleikararnir koma manni alltaf í gott skap!!!

Kommentaleysi!

Oh, bloggið hefur verið að gera mig geðveika undanfarnar vikur. Ég skildi ekkert í þessu kommentaleysi frá ykkur lesendur góðir, hélt nú fyrst að það vildi bara enginn skilja eftir sig komment hérna hjá okkur. Sniff sniff! Komst svo að því að svo var nú ekki, heldur tókst fólki ekki að kommenta á færslurnar. Og ég er búin að vera að hrissta hausinn yfir þessu, breyta stillingum og ég veit ekki hvað. Samt gerðist ekkert! Óþolandi! Nema ég var að fatta hvað var að. Álpaðist inn á síðu sem kallast "moderate comments" og þar biðu allir kommentarnir ykkar eftir því að ÉG samþykkti þá! Algjör sauður! En nú á þetta að vera komið í lag og ég bara sleppti þessu með að samþykkja komment enda man ég aldrei eftir svoleiðis hlutum. Svo gjörið svo vel og kommentið að vild!!!

þriðjudagur, apríl 25, 2006

Helgarpósturinn

Helgin okkar var yndislega afslöppuð úti í sólinni og góða veðrinu. Hún hófst reyndar strax á föstudagseftirmiðdaginn en þá gafst ég upp við að pína mig og son minn og opnaði dyrnar út í garð. Við vorum þar úti það sem eftir lifði dags!!! Yndislegt alveg. Ég ákvað bara að ég yrði að lifa með því ef honum slægi niður, en sem betur fer sleppti hann því nú bara, enda orðið hlýtt og notalegt í garðinum.

Á laugardaginn vöknuðum við svo öll með seinna fallinu, drifum okkur í fötin og fórum niður á torg. Byrjuðum á morgunmat á Pain Quotidien - ekkert jafnast á við kaffi og súkkulaðibrauð í morgunmat! Kjartan var auðvitað í því að sjarmera gömlu konurnar á næsta borði! Því næst skelltum við okkur á markaðinn þar sem við byrgðum okkur upp fyrir kvöldið, meðal annars voru keypt NÝ BELGÍSK JARÐARBER!!! Jumm jumm! Þvílík gleði og sæla.
Eftirmiðdagurinn fór svo bara í afslöppun, innkaup og matarundirbúning. Kjartan hafði það hrikalega gott úti í garði og fékkst varla inn. Á meðan höfðum við frið til að undirbúa grillið um kvöldið, setja kjöt í marineringu, pakka grænmeti í álpappír og útbúa jarðarberjadesertinn!
Helga og Sigurjón komu svo í grill og tókst það bara frábærlega vel þótt ég segi sjálf frá, sinnepslime-marinerað svín, grillað eggaldin og paprikur í hvítlauks-ólífuolíu, bakaðar kartöflur og öllu rennt niður með eðal-Borðeyrarvíni. Jarðarberjatilraunin mín í anda tiramísú og danskrar eplaköku - sem innihélt m.a. Sauðanesvín (Sauternes) varð alveg ágæt en samt ekki toppurinn á tilverunni. Uppskriftin þarfnast endurskoðunar....
Gestirnir voru svo sjanghæjaðir í spilerí og var setið yfir Trivial langt fram á nótt! Hið skemmtilegasta kvöld.

Á sunnudeginum vöknuðum við svo öll mjög seint. Meira að segja Kjartan svaf út, enda fékk hann að vaka lengur kvöldið áður. Eftir morgunmat skelltum við okkur út í labbitúr í góða veðrinu. Parkeruðum bílnum okkar rétt við nýja húsið og tókum labbitúr um hverfið. Bak við liggur mikill göngu- og hjólastígur þar sem einu sinni lá járnbraut. Þessi stígur var vel pakkaður af fólki, bara eins og Ægissíðan á góðum sumardegi! Þar fundum við líka park með læk og tjörn og Kjartan var fljótur að finna út úr því að kasta steinum og drasli í lækinn. Við fundum líka þennan fína róló og uppgötvuðum hvar helst er að finna hinar ýmsustu búðir og veitingastaði í hverfinu.
Þegar heim kom var snarlaður hádegismatur (eða frekar eftirmiðdagsmatur) og svo endaði öll familían á því að leggja sig aðeins.... Þegar við skriðum úr rotinu var bara kominn kvöldmatartími og eftir ljúfan mat var bara legið í leti þar til rúmið kallaði aftur! Næstum algjör letidagur sem sagt!

Ég væri til í svona!!!



Myndin er fengin að láni héðan.

föstudagur, apríl 21, 2006

Ég elska vor

Yndislegt veður úti og við Kjartan að hanga inni. Hér er bara sól og blíða, 20 stiga hiti, og ljúft veður. Er eiginlega orðin þunglynd á því að hanga inni, en þori ekki öðru. Vil heldur að Kjartan verði orðinn hress á morgun og geti gert eitthvað um helgina, en að hlaupa með hann út of snemma. Svo við horfum bara á sólina skína úti.

Það var kominn svo mikill vorfílingur í okkur í gærkvöldi að við hreinlega urðum að setjast út með einn drykk. Að vísu þurfti maður að vera í peysu, og við entumst ekki mjög lengi, sirka hálftíma. En úti sátum við og sötruðum drykkina okkar! Mjög rómantískt í kvöldkyrrðinni. Fuglarnir flögruðu um og við tókum sérstaklega eftir tveim sem voru duglegir í tilhugalífinu akkúrat í garðinum okkar og flugu reglulega inn í sýprus-tréið. Nema eftir að hafa fylgst með þeim smá stund tókum við eftir að þetta voru ekki fuglar, heldur litlar leðurblökur!! Leðurblökurómantík í garðinum!!! Og þær hafa hreiðrað um sig í sýprus-tréinu. Held ég vilji ekki vita þetta!!!

Hér er líka orðið mjög vorlegt. Rétt fyrir páskana fóru fyrstu runnarnir að blómstra og allt varð gult. Nú hafa epla- og kirsuberjatréin bæst í hópinn, sem og magnólíutréin, svo hér eru hvít- og bleikblómstrandi tré út um allt. Yndislegt! Og allir belgarnir komnir á fullt í vorverkunum. Það heyrist í sláttuvélum og hekkklippum úr öðrum hverjum garði. Nýju nágrannarnir okkar eru líka komnir á fullt að smíða sér pall og ég hef dundað mér við það í innipúkastandinu að fylgjast með framgangi mála. Aðferðirnar sem þeir beita eru nú skrautlegar, pabbi myndi nú hrissta hausinn yfir þessum hellulögnum. Því þeir hreinlega lögðu hellurnar beint á grasið og steyptu svo í kring og inn á milli. Ekkert verið að skipta um jarðveg, þjappa sandi undir og dútlast og ditta, hallamæla eða nokkuð. Svo núna er hann að smíða pall ofan á hellurnar og smíðaaðferðirnar eru svipað flóknar. Jamms!

En nú er að koma helgi og veðurspáin er sko ekki amaleg. Það verður setið út í garði, leikið út í garði, rölt á markaðinn og grillað. Hlakka til að sleppa út í vorið!

miðvikudagur, apríl 19, 2006

Komin heim með lasinn stubb

Jæja, við komum heim í gærkvöldi eftir velheppnað afslöppunarfrí til Bourgogne og Lyon. Það er ýmislegt sem seint gleymist eins og hringekjan í Beaune, vínsmakk hjá M. Génot í Mersault, piknik í hádeginu eftir ferð á markaðinn í Mersault, að hafa fundið vínekruna Derrière chez Edouard í St-Aubin, göngutúr um Corton hæðina, maturinn hjá M. et Mme Sanchez í Ladoix-Serrigny, að hafa rekist á Matthildi og stórfamilíuna hennar á röltinu í Nuits-Saint-Georges, páskasteikin hennar Jónu Dóru, píanótónleikar Kjartans, lyftan í húsinu við 65 Cours de la Liberté, labbitúr um gamla bæinn í Lyon, afhending brúðkaupsgjafarinnar í kjallaranum, bjórsúkkulaðikakan og allt hitt súkkulaðið! Nánari ferðasaga bíður betri tíma....

En við komum heim í gærkvöldi eftir heilan dag af keyrslu. Lögðum af stað frá Lyon um hálf 11 og vorum komin í hlað hálf 7! Og það með stoppum og meira að segja viðkomu í búð til að verlsa í matinn.
Kjartan stóð sig eins og hetja og var afskaplega þægur og stilltur alla leiðina. En kannski engin furða því hann var hálfslappur, enda var hann með smá hita. Hins vegar var hann orðinn verulega slappur og vælinn þegar heim var komið og þegar nánar var að gáð var hann kominn með 40 stiga hita!! Svo hann var háttaður á staðnum og hringt í lækninn. Við fengum tíma 40 mín síðar en máttum gefa honum hitalækkandi stíl áður en við kæmum. Og þvílík breyting á einu barni. Þegar við komum til doksa mátti ekki sjá að það væri nokkuð að barninu, hann var bara hress og kátur og sami óþekktarormurinn. En doksi fann út að Kjartan er með hálsbólgu svo hann verður víst heima næstu dagana að ná þessu úr sér! Ekki það, við höfum bara gott af smá afslöppun heima, mæðginin. Eini gallinn er að það er komið svo gott veður að mig langar mest að liggja út í garði... það bíður víst betri tíma.

miðvikudagur, apríl 12, 2006

Próf og veðurfræðingar

Jibbí skibbí, ég er búin með prófið mitt. Var að klára skriflega hlutann af síðasta prófinu. Þá er bara það munnlega eftir, sem verður í kvöld! Svo býður kennarinn upp á kampavín á eftir. Eins gott fyrir hann, fyrst hann er að láta okkur ganga í gegnum munnlegt próf. Hnuss.... (sést rjúka úr eyrunum á mér???)

Mér til ánægju rölti ég svo niður á torg eftir að ég kláraði prófið. Í sól og blíðu! Eitthvað eru veðurfræðingarnir hérna ekki með hlutina alveg á hreinu eða hreinlega ljúga að manni því þeir voru búnir að spá rigningu. En það er svo sem ekkert nýtt eða týpiskt belgískt. Undanfarið hefur sí og æ komið fyrir að veðurspáin standist ekki, sólin skinið þrátt fyrir rigningarspár eða öfugt. Ekki að ég kvarti, það hefur einmitt frekar verið mér í hag, meiri sól!

Oh, svo hlakka ég bara til að klára prófið. Eftir það verður svo bara sett í pakk-fluggírinn og fötum skóflað ofan í ferðatösku því á morgun leggjum við af stað í páskafrí. Verðum fyrst 2 daga í Bourgogne, að slaka á, borða góðan mat og smakka vín. Svo förum við til Jónu Dóru í Lyon og það verður sama upp á teningnum þar, slaka á, borða góðan mat og hitta familíuna. Eflaust drukkið eitthvað vín líka! Amk fer vænn skammtur af víni með til baka, en við eigum alltaf eftir að sækja brúðkaupsgjöfina okkar sem er geymd ofan í kjallara í Lyon!

Grillhelgin mikla!!

Síðasta helgi var algjör grillhelgi enda kjörið veður til grillunar, sól, að vísu með skúrum inn á milli, og bara milt hitastig (s.s. ekki ennþá orðið heitt!!!).

Helgin byrjaði nú fyrst á miklu fjöri. Við Kjartan sóttum Hrafnkel snemma í vinnuna og svo skelltum við okkur í afmæli til Sillu. Þar var margt góðra gesta og ljúffengar líbanskar veitingar. Fullorðna fólkið gat mikið skrafað og spjallað, skálað og hlegið. Þarna voru líka nokkrir litlir ormar, öll á sama aldri, fædd í febrúar og mars 2004, plús einn örlítið yngri, og þeim leiddist sko ekki neitt. Kjartan var nú samt framan af mest að dunda sér einn og lét "gengið" alveg vera, en þegar leið á var hann kominn á fullt span með hópnum. Virkilega skemmtileg og notaleg stund, en svo stungum við af upp úr 8 til að koma litlum stubbi í rúmið.

Á laugardagskvöldið ætluðu Óli og Laurence að koma í mat til okkar og ætlunin var að grilla, svo laugardagurinn skildi tekinn í að koma grillinu í nothæft ástand, kaupa nýjan gaskút og þrífa af því drulluna eftir veturinn. Hrafnkell hélt af stað í gas-leiðangur á bensínstöðina niðri við torg (sirka 5 mín í burtu) um 11-leytið. 2 og hálfum tíma síðar kom hann heim með gaskút! Þá var bensínstöðin góða hætt að selja gaskúta svo hann hélt í leiðangur að finna aðrar bensínstöðvar með slíka kúta. Eftir nokkur stopp og langa leit kom hreinlega í ljós að þeir eru alveg hættir að selja þessa kúta. Þegar þarna var komið sögu var Hrafnkell kominn lengst upp í sveit! Eftir nokkur símtöl og með aðstoð netsins tókst okkur að finna stað sem seldi gaskúta, ásamt öðrum "nauðsynjavörum" eins og hundamat og garðverkfærum. Eigandinn talaði bara flæmsku (enda í sveitinni) og sem betur fer kunni Hrafnkell nóg til að redda okkur gaskút! Algjört bíó!
Eftir að gaskúturinn var í höfn var svo grillið þrifið hátt og lágt og ég get lofað að það hefur aldrei verið svona fínt, aldrei! Nema kannski þegar það kom glænýtt úr búðinni.
Á meðan foreldrarnir stóðu í þessu veseni með grillið, dundaði Kjartan sér að leika bæði úti og inni. Mest gaman var þó að vera úti. Í þessu vorveðri sem hefur verið hér undanfarið, rigningarskúrir við og við, þá er garðurinn að líkjast meir og meir drullusvaði. Og litlum strumpi þykir fátt skemmtilegra en að drullumalla í garðinum. Ég dró hann inn um hálf sjö leytið á laugardaginn og þá leit hann svona út! Auðvitað háskælandi yfir því að þurfa að koma inn!

Óli og Laurence komu svo til okkar um hálf 6 á laugardaginn. Við byrjuðum á því að velja úr öllum uppskriftahugmyndunum en svo fóru Óli og Hrafnkell út að versla á meðan við Laurence sátum og kjöftuðum, aðallega um brúðkaupsplön og þá þjáningu að setja saman gestalista!
Síðan var tekið sameiginlegt átak í eldhúsinu og úr varð þessi líka veislumatur: soja-hunangs-marineraður kalkúnn og svínakjöt, franskt kartöflusalat og grilluð olíuborin paprika og eggaldin í hvítlauk og ferskum kryddjurtum. Algjört nammi! Og tíramísú í desert, klikkar aldrei. Svo var setið við að skrafa og ræða málin fram eftir kvöldi.

Á sunnudaginn var svo afslöppunardagur. Við sátum lengi vel með vínguida og ferðahandbækur og spáðum í hvað við ætluðum að gera í Bourgogne, pikkuðum út vínbónda sem væri áhugavert að heimsækja og hvaða staði væri gaman að sjá. Svo Bourgogne ferðin okkar er að verða vel plönuð. Seinnipartinn skelltum við okkur í bíltúr í fína gluggaveðrinu, skínandi sól en kalt. Enduðum í Leuven, þar sem við tókum okkur smá labbitúr í góða veðrinu og spókuðum okkur. Vorum svo heppin að ramba á sömu ísbúð og við fundum síðast, svo auðvitað splæstum við okkur í smá glaðning. Við vorum voða fegin að Kjartan vildi fá ís í þetta sinn, ég var farin að hafa áhyggjur!
Þegar heim kom drógum við svo aftur fram grillið og göldruðum fram þessa líka dýrindis hamborgara, með osti, beikoni og öllu... og auðvitað voru franskar frá Charles með! Þeir slá nú samt varla Vitaborgurum við.... Kjartan vildi nú ekki borða hamborgarann sinn, en hámaði í sig þeim mun meira af frönskum. Hann er svo mikill Belgi þessi elska!

Sem sagt, fjölbreytt og fjörug grillhelgi...

Myndir

þriðjudagur, apríl 11, 2006

Leopold stækkar!

Tilvonandi verðandi kríli nr. 2 hefur fengið vinnuheitið Leopold, að sjálfsögðu í höfuðið á Leopold II Belgíukonungi. (Við ætlum greinilega barninu mikla hluti). Það gengur ekki lengur að kalla það rækjuna, því það er víst orðið stærra en rækja, enda komnar 14 vikur! Það er orðið svo stórt að mamman er þegar komin með bumbu.... frekar snemma að mér finnst, magavöðvarnir greinilega slappari en þegar ég gekk með Kjartan! Sjáið bara!
Sem betur fer er mamman öll að koma til, ógleðin er á undanhaldi þótt hún blossi upp við og við, og orkan er eitthvað að koma til baka. Suma daga væri þó best bara að vera í rúminu og sofa....

Netpróf eru skemmtileg þegar maður er í prófi!

You Are an Excellent Cook

You're a top cook, but you weren't born that way. It's taken a lot of practice, a lot of experimenting, and a lot of learning.
It's likely that you have what it takes to be a top chef, should you have the desire...

mánudagur, apríl 10, 2006

Að verða foreldri

Að verða foreldri breytir öllu í lífi þínu. Foreldrahlutverkið breytist líka með hverju barni. Hér eru nokkur dæmi um hver breytingin verður frá fyrsta til þriðja barns.

Föt
1.barn: Þú ferð í óléttufötin um leið og þú ert búin að pissa á pinnann og fá tvö strik.
2.barn: Þú ert í þínum venjulegu fötum eins lengi og þú mögulega getur.
3.barn: Óléttufötin eru þín venjulegu föt.

Undirbúningur fyrir fæðingu
1.barn: Þú gerir öndunaræfingar, mjög samviskusamlega.
2.barn: Þú nennir ekki að æfa, vegna þess að þú manst að síðast gerðu öndunaræfingarnar ekkert gagn.
3.barn: Þú pantar mænudeyfingu strax á 8. mánuði.

Barnafötin
1.barn: Þú þværð öll litlu sætu fötin, straujar og brýtur saman og raðar í kommóðuna.
2.barn: Þú rennir í gegnum fatabunkann, hendir því sem er mjög blettótt og þværð restina.
3.barn: Strákar geta alveg verið í bleiku, er það ekki?

Áhyggjur
1.barn: Við fyrsta kjökur eða tíst sem heyrist úr vöggunni,rýkurðu til og tekur barnið upp.
2.barn: Þú tekur barnið upp, svo það veki ekki eldra barnið með vælinu.
3.barn: Þú kennir þriðja barninu að trekkja sjálft upp óróann yfir vöggunni.

Snuðið dettur í gólfið
1.barn: Þú tekur það upp og notar ekki aftur fyrr en þú ert búin að sjóða það rækilega.
2.barn: Þú skolar það undir næsta krana, eða bara með svolitlum ávaxtasafa úr glasi barnsins.
3.barn: Þú þurrkar það mesta af því í bolinn þinn og stingur því aftur upp í barnið.

Bleyjur
1.barn: Þú skiptir um bleyju á klukkutíma fresti, hvort sem þess er þörf eða ekki.
2.barn: Þú skiptir á 2-3 klst. fresti, ef þess þarf.
3.barn: Þú reynir að vera búin að skipta um bleyju, áður en aðrir fara að kvarta undan lyktinni, eða bleyjan dettur niður fyrir hné á barninu.

Afþreying
1.barn: Þú ferð með barnið í ungbarnasund, ungbarnanudd og barnaleikfimi.
2.barn: Þú ferð með barnið í ungbarnasund.
3.barn: Þú ferð með barnið í Kringluna og Smáralind.

Pössun
1.barn: Í fyrsta skipti sem þú ferð út, þá hringirðu heim 5 sinnum.
2.barn: Þú rétt manst eftir að skilja eftir númer þar sem hægt er að ná í þig.
3.barn: Þú segir barnfóstrunni að hringja bara ef það sést blóð.

Heima
1.barn: Þú eyðir góðum hluta dagsins í að stara á barnið.
2.barn: Þú eyðir góðum hluta dagsins í að stara á eldra barnið svo það klípi ekki eða poti í augun á nýja barninu.
3.barn: Þú eyðir góðum hluta dagsins í að fela þig fyrir börnunum.

fimmtudagur, apríl 06, 2006

Urr... Icelandair

"Elskulegir" Flug-leiðir eru að gera mér gramt í geði þessa dagana. Verst að ég þarf að skipta við þá því ekki dettur Iceland Express eða nokkrum öðrum að fljúga Brussel-Ísland.
En við vorum sem sagt búin að ákveða að senda Kjartan með ömmu og afa til Íslands í byrjun júní og koma svo að sækja hann um miðjan mánuðinn. Og síðustu daga höfum við verið að ganga frá miðum. Fyrst ætlaði bara annað okkar Hrafnkels að koma en ákváðum svo að reyna að koma bæði, hann þarf að finna "Gulu hættunni" nýjan samastað og ég þarf að skoða öll nýju krílin sem eru komin eða koma í heiminn þetta vorið.
Nema hvað, á fimmtudaginn í síðustu viku fór ég að leita að verðum á netinu og sá að flug til Íslands frá Amsterdam var nú "ekki nema" 26.000. Hægt að lifa það af. Tveim dögum síðar þegar við settumst við tölvuna að bóka flugið var gjaldið komið upp í 33.000... og er orðið enn hærra núna. Við létum okkur nú samt hafa það og keyptum miða fyrir mig eina! En djö... er þetta dýrt!!! Ætlum svo að sjá til hvort það komi ekki net-tilboð eftir páskana, eða sendum Hrafnkel í 3ja tíma akstur til Hahn og þaðan með IE á Klakann.
Síðan hefur pabbi staðið í samskiptum við Flugleiði til að bóka Kjartan, en það þarf að fara eftir krókaleiðum þar sem hann fer til Íslands með ömmu og afa og til baka með mér. Ekki einfalt en alveg hægt. Og farið hans báðum við um að væri tekið út af vildarpunktunum okkar. Fengum það uppgefið í vetur að fargjald fyrir barn ætti að kosta 19.900 punkta! Nema hvað, pabbi fékk tilkynningu frá þeim í gær að við ættum ekki nægilega punkta og kemur þá í ljós að þeir ætla að rukka FULLA 38.000 punkta, alveg eins og fyrir fullorðna manneskju!!!! Ég var að fá símtal frá þeim og er enn urrandi...
Ef ég gæti myndi ég sko EKKI skipta við þá!!!!

Smá update: Það kom í ljós að þeir slógu inn vitlausa kennitölu á Kjartan, þannig að hann var skráður miklu eldri en hann er!!! Pabbi hringdi og skammaðist og konan í fjarsölunni ætlaði ekki að kannast við að hafa gert mistök. Skildi samt ekkert í því að nafnið og kennitalan pössuðu ekki saman! Skrýtið!! En sem betur fer fékk hann samband við aðra sölukonu sem greinilega hefur hausinn á réttum stað og hún gat reddað þessu!

miðvikudagur, apríl 05, 2006

Til hamingju með afmælið Tóta móða!!!

Tóta móða á afmæli í dag! Til hamingju með afmælið skvís!

Garðálfurinn Kjartan

Mamma spurði mig í gær hvort Kjartan væri alltaf jafn duglegur að leika sér út í garði alveg sjálfur, og ég játaði því. Sem hann er. Maður bara sendir hann út í garð og hann getur endalaust dundað sér, eitthvað annað en innandyra, þar sem hann vill frekar fá félagsskap þegar hann er að leika sér.

En ég fór að hugsa í gær. Það er ekkert skrýtið að honum þyki gaman að vera úti, hann er algjör gaur, vill vera í aksjón og bralla með stóra hluti, ekki dunda sér við eitthvað dútl. Ég meina, hans uppáhalds iðja frá því áður en hann fór að ganga er að færa til húsgögn!!!
Úti í garði fær hann útrás fyrir að vera gaur, hann göslast um með dótið sitt, hefur algjört frelsi til að væbblast allsstaðar um og tekur regluleg áhættuatriði þar sem hann prílar upp rennibrautina og svo niður stigann! Miklu skemmtilegra en að fara venjulegu leiðina.

Svo dettur honum ýmislegt í hug sem kannski ekki allir foreldrar væru ánægðir með. Ein hans uppáhaldsiðja er að burðast með eina og eina spýtu úr eldiviðarbunkanum og troða henni inn í hundahúsið sem er þarna undir svölunum!! Ég held að það sé orðið verulega fullt!!! Um daginn þurfti pabbi hans að fara út og hreinlega taka hann inn því lítill drengur var orðinn svo reiður og farinn að hágráta því honum gekk ekkert að koma bílnum sínum inn í gegnum eitt gatið á kastalanum!!! Bæði loftaði hann illa bílnum og svo er gatið hreinlega ekki nógu stórt!! En þetta voru auðvitað ástæður sem lítill drengur var ekki ánægður með og reyndi samt áfram...

Best í heimi er samt að fá að sulla! Oftast hafa menn verið gallaðir í regnföt frá toppi til táar, stígvél og allar græjur. Svo kemur hann inn með reglulegu millibili til að fá áfyllingar á garðkönnurnar sínar, fer síðan í leiðangra og vökvar það sem á vegi hans verður og sjálfan sig í leiðinni. Ég hef komist að því að regngallar eru algjör nauðsyn fyrir svona gaura. Nema í gær var lítill stubbur bara úti á úlpu og skóm því veðrið var svo gott. Eftir langa dvöl í garðinum kom hann svo inn með fötu og vildi fá vatn í hana. Og ég sem var á kafi í eldamennskunni lét gott heita, vissi samt alveg að litla dýrið kæmi rennandi blautt inn að lokum! Hann kom nokkrum sinnum og fékk vatn í fötuna og merkilegt nokk, tókst að bleyta sig fremur lítið. Síðan hætti fatan að vera spennandi og orðið meira spennandi að hanga í eldhúsinu. Eitthvað sinn er ég að sækja nýtt viskustykki í skápinn og þá vildi Kjartan endilega fá það, sem hann svo fékk. Stuttu seinna fer ég að heyra þvílíku skvamphljóðin frá svölunum og fór að gá. Var þá ekki lítill maður farinn að þrífa svalirnar!! Hann stakk viskustykkinu ofan í fötuna og þar sem svona litlir gaurar eru ekki farnir að læra þetta með að vinda tuskur, þá gekk hann um með rennandi blauta tuskuna og þreif. Svalirnar, stólarnir, borðið, grillið, handriðið, gluggarnir, allt fékk sinn þvott. Mamman setti hins vegar stopp þegar hann ætlaði inn og þrífa þar!!! Eftir allan þennan vatnsaustur leit barnið svona út þegar hann kom inn... var orðinn svo holdvotur að hann hágrét. Og það þurfti að skipta um hverja einustu flík....
Kjartan holdvotur

þriðjudagur, apríl 04, 2006

Humm...

Áhugavert að vita:


How Will I Die Quiz

How Will I Die Quiz

You will die at the age of 61

You will die in a freak accident with a banana

Find out how you will die at Quizopolis.com

Quizopolis

mánudagur, apríl 03, 2006

Helgarfregnir

Ég sit hér við tölvuna að vinna í prófinu mínu. Sem betur fer var einn af kennurunum mínum svo vinsamlegur að láta okkur hafa heimapróf, svo maður hefur nokkra daga til að dunda sér. Nema ég er ekkert alltof dugleg, aðallega dugleg við að láta trufla mig, láta hugann reika og gera allt annað en að vinna í prófinu. Ákvað því að blogga, bara svona til að hrissta upp í heilasellunum og fá skriftarandann yfir mig!

Þessi helgi var nú með rólegasta móti hjá familíunni í Hlynsstræti. Á föstudagskvöldið djömmuðu reyndar foreldrarnir smávegis, í sitthvoru lagi. Hrafnkell fór með Óla og fékk sér bjór eftir vinnu, rakst svo á kollega á leið heim og spjallaði meira við þá, þannig að hann kom heim þegar Kjartan var farinn að sofa og ég komin í fullt sving að sjæna mig til. Ég fór svo út að borða með skvísunum í bænum, skelltum okkur á Le Mess og fengum geggjaðan mat, spjölluðum um allt á milli himins og jarðar og þá aðallega bókina sem við höfum allar verið að lesa, en það var jú tilgangurinn, að ræða bókina góðu! Djammið var nú reyndar með penna móti enda 3 af 5 óléttar (jepp, þetta er smitandi). Við mættum nú samt í háum hælum og með vænt lag af augnskugga!!!

Á laugardaginn leyfði Kjartan foreldrum sínum að sofa alveg til 9, en við lágum öll áfram og kúrðum í rúminu. Skriðum svo loks á fætur og skelltum okkur í morgunmat niður á Pain Quotidien. Alltaf hressandi! Fórum svo á markaðinn, eyddum formúgu í fisk í fiskbúðinni og heilsuðum upp á Phil í vínbúðinni.
Dagurinn leið svo bara í leti. Í mig hljóp fídonskraftur á meðan ég beið eftir prófinu mínu svo ég bakaði möffins, og slæpptist svo bara um. Hrafnkell sat og las, en Kjartan eyddi mestum eftirmiðdeginum í garðinum, lét ekki einu sinni rigningu stoppa sig. Að vísu fór hann að háskæla þegar úrhellið hófst, enda var hann bara á peysunni, svo pabbi hans þurfti að hlaupa út á bol og inniskóm til að sækja hann. En um leið og hann var kominn í regnjakkann var honum alveg sama! Inn kom svo barnið rennandi blautt inn að beini. Á meðan Hrafnkell eldaði dýrindis fiskrétt úr rándýra fiskinum sem við keyptum, vorum við Kjartan að kubba og horfa á Bangsímon. Eftir að Kjartan var kominn í rúmið settumst við svo yfir Dave Allen og Yes Prime Minister og skemmtum okkur konunglega!

Sunnudagurinn var svo annar í letidegi. Ég fékk prófið mitt sent um miðnættið og var búin að plana allan daginn í skriftir, en þegar ég sá prófið þá var það mun léttara en ég bjóst við. Svo við ákváðum að gera eitthvað skemmtilegt og undirbjuggum sundferð þegar við skriðum á fætur. Nema hvað, þessi sundlaug sem við ætluðum í er lokuð í hádeginu um helgar, svo það tók því ekki að fara ofan í þegar við mættum á svæðið. Í staðinn fórum við í smá bíltúr, enduðum á Capoua og fengum okkur ís! Kjartan er greinilega enn að jafna sig eftir síðustu heimsókn, en þá borðaði hann svo yfir sig að hann sat skjálfandi á eftir! Hann neitaði að borða nokkurn ís!!! Við skiljum ekki að hann sé okkar barn....
Seinnipartinn settist ég svo yfir prófið mitt og vann eitthvað í því. Á meðan léku þeir feðgar sér bæði innan- og utandyra. Það var mikið sullað, spilaður fótbolti og fleira skemmtilegt! Svo leið kvöldið bara við venjuleg störf... og allir skriðu snemma í háttinn!

föstudagur, mars 31, 2006

Það var og...

Mig hefur oft langað til að fara aftur upp í MH og heilsa upp á Miðgarðsorminn, en við eyddum ófáum stundunum í það að prjóna búta í orminn góða. Ekki bjóst ég við að sjá hann svo í sjónvarpinu....
Hehe, ég vorkenndi greyjunum þegar þeir voru að skófla orminum inn í bílinn. Það voru nú nokkrar ferðirnar sem við fórum með orminn, heim úr fríum og svo aftur í skólann, og alltaf var þetta sama baslið! Skil stundum ekki hvernig við komumst öll í Skrölta, ormurinn og 4-5 ormaberarar!!!

fimmtudagur, mars 30, 2006

Fjölskyldan stækkar

Ég held að við höfum alveg haldið kjafti á blogginu og kominn tími til að bæta úr því, þar sem við höfum ekkert verið að halda þessu neitt mikið leyndu við ættingja og vini. Held nú reyndar að flest ykkar viti þetta núna...

En fjölskyldan fer stækkandi og von er á kríli #2 sirka í byrjun október. Doksi segir 6. okt en ég er viss um að krílið finnur sér sinn eigin dag!
Ég var einmitt í skoðun í gær og læknirinn minn skoðar mann alltaf í sónar í hverri skoðun. Ekki slæm þjónusta!! Tók einmitt Hrafnkel með þar sem þetta var stór sónarskoðun, verið að mæla hnakkaþykktina og fleira, svo við fengum að sjá litlu "rækjuna" sem er orðin heilir 7 sm að stærð!!!! Krílið hafði það voða notalegt í byrjun, lá þarna í makindum sínum en fór á þvílíkt flug, hoppaði og skoppaði, boxsaði og var með almenn læti. Eflaust annar pönkari! "Rækjan" vildi nú ekkert hlýða og snúa sér á þann veg að læknirinn gæti mælt, svo við fengum alveg extra langa sýningu á krílinu. Voða gaman og komum út brosandi hringinn!!! Og auðvitað er það strax farið að sýna sig að þetta er barn nr. 2 því við hreinlega steingleymdum að biðja um mynd!!! Það verður þá bara næst....

Og ég hef það bara fínt, takk fyrir að spyrja! Er endalaust þreytt og gæti hreinlega sofið nokkra daga í einu. Svo hefur helv.. ógleðin verið að bögga mig eins og síðast svo matarlystin er ekki upp á marga fiska!!! Enda lítur út fyrir að þessi meðganga verði alveg jafn góð megrun og sú síðasta!!!

Svo ef þið hafið verið að kvarta yfir bloggleysi undanfarna mánuði þá er það sökum þreytu og andleysis... og ég segi bara, sem betur fer er skólinn að verða búinn, hef ekki orku lengur í að hugsa um hann...

Nokkrar nýjar myndir

Setti inn nokkrar nýjar myndir í "vorið er komið" albúmið á myndasíðunni!

Stutt en hlý helgi

Helgin okkar var alveg yndisleg. Mikil afslöppun og leti ÚT Í GARÐI!!!!

Vorið kom sko með stæl, hækkandi hita og meira að segja smá sunnudagssól.

Á laugardeginum var nú reyndar rigning en við gölluðum Kjartan samt upp og sendum hann út í garð. Þar getur hann bara endalaust unað sér. Reyndar stytti svo upp svo við skelltum okkur í leiðangur á markaðinn, keyptum fisk í matinn, grænmeti og ávexti og útréttuðum ýmislegt. Stoppuðum í barnaskóbúðinni og fengum ný stígvél á Kjartan því grænu krókódílastígvélin eru orðin of lítil. Barnið stækkar svo hratt!!!
Eftirmiðdagurinn leið svo í almennri leti og afslappelsi þar til kom að því að gera sig sætan. Við foreldrarnir skelltum okkur nefnilega út að borða, í smá kósíheit og rómantík. Nathalie kom og passaði Kjartan, honum líkaði það reyndar ekki í fyrstu, grét þegar við fórum, vildi bara hafa mömmu og pabba heima. En sá grátur entist víst stutt og þau skemmtu sér konunglega. Við fórum hins vegar að borða á Fin de Siècle, fínum ítölskum stað og fengum alveg ægilega gott að borða. Svo gott að Hrafnkel dreymir enn um matinn og smjattar í svefni!

Á sunnudeginum var svo komið alveg agalega gott veður, sól og um 18 stiga hiti. Við Kjartan leyfðum pabbanum að sofa út en vorum sjálf komin snemma út í garð, fundum til garðstólana og borðið á svalirnar og lékum okkur heilmikið. Svo þegar pabbinn vaknaði fékk hann morgunmatinn og morgunkaffið úti á svölum.
Þessi vorboði hleypti svo miklum fítonskrafti í okkur að ég tók mig til og skrúbbaði svalirnar, umpottaði blómum, henti þeim sem lifðu ekki veturinn af og snyrti stjúpurnar. Þannig að svalirnar eru orðnar voða fínar og bíða næsta sólardags. Hrafnkell skellti sér í að þrífa, bóna og ryksuga bílinn svo hann er orðinn skínandi hreinn! Ofvirkt fólk!
Um miðjan daginn uppgötvuðum við svo að við áttum að vera búin að færa klukkuna fram um 1 tíma, svo við töpuðum heilum klukkutíma af þessum góða degi. Sem betur fer þurfti maður ekki að mæta neitt, því síðan hefur maður heyrt af hrakfallasögum annarra sem hreinlega gleymdu að færa tímann og mættu of seint!! En þetta hringl með klukkuna varð til þess að lúrinn hans Kjartans varð óvenju stuttur!
Seinnipartinn fórum við svo í göngutúr um hverfið með Kjartan á þríhjólinu sínu og enduðum á róló. Þegar heim var komið var svo eldaður dýrindis skötuselur eftir uppskrift frá Óla, algjört sælgæti, og síðan lagst í að glápa á Yes Prime Minister áður en haldið var í bólið.

laugardagur, mars 25, 2006

Vorið er komið og grundirnar gróa...

... gilin og lækirnir fossa af brún.....

Jei, hér er sko komið vor. Loksins fóru hitatölurnar almennilega yfir tíuna og maður getur virkilega farið að hlakka til sumarsins. Að vísu fylgdi hækkandi hiti rigning, en inn á milli rigningarskúrana finnur maður hlýjuna í loftinu! Og maður verður eitthvað svo glaður... eins og belja að vori!

Í tilfefni hækkandi hita höfum við Kjartan verið dugleg að fara út að leika, það er komið við á róló á leiðinni heim af crèchinu eða haldið beint heim í garðinn. Myndin er einmitt frá garðskemmtun okkar Kjartans í gær og þær eru fleiri í myndaalbúminu. Ég setti litla sulldýrið bara í regngallann fína og krókódílastígvélin og út í garð í hellidembu. Og fyrst barnið var svona vel gallað var ekkert því til fyrirstöðu að leyfa honum að sulla, svo hann bardúasðist um allan garð með garðkönnurnar sínar og helti vatni yfir sig og aðra viðstadda. Þrátt fyrir varnargallann var barnið blautt inn að beini þegar við komum inn!

En af Kjartans vígstöðvum er allt gott að frétta, barnið stækkar og þroskast hreinlega fyrir augunum á okkur. Eftir heimsókn Matthildar um síðustu helgi er eins og að málstöðvarnar hafi tekið kipp því allt í einu hefur orðaforðinn stórlega aukist og maður er farinn að greina fjölmörg orð í orðaflaumnum hans, sem hingað til hefur ekki skilist nema af Kjartani sjálfum.

Í vikunni var hann svo að tala við ömmu og afa í gegnum web-cam, var voða heillaður að sjá þau á skjánum og endurtók sífellt: "amma" og "afi". Nema svo tók hann eftir litlum glugga á skjánum þar sem hann sjálfur var í mynd og ég sagð að þarna væri Kjartan. Þá benti litli maðurinn á sjálfan sig og sagði: "Etta Kjartan"! Samþykkti ekki að hann væri inn í einhverri tölvu!!!

Önnur stórtíðindi gerðust líka í vikunni á sviði bleyjulosunar. Þjálfun af því tagi að losa barnið við bleyjur er hafin á heimilinu, nema hingað til hefur Kjartan hreinlega ekki viljað nota koppinn nema til að leika með og öll tilþrif foreldranna til að plata hann á koppinn hefur hreinlega verið mætt með hrossahlátri! Mamman meira aðsegja prófaði að láta uppáhaldsbangsann Jansen sitja á koppnum og "pissa" í hann nema Jansen var hreinlega hent í baðið fullt af vatni fyrir að svíkja málstaðinn!

Svo gerðust þau undur og frímerki í vikunni að barnið hreinlega klæddi sig úr buxunum og bað um að pissa í klósettið! Honum fannst þá greinilega koppurinn bara svona barnalegur! Kjartan pissaði því í klósett eins og stór strákur í heila 2 daga, en um leið og foreldrarnir voru farnir að monta sig af því út um allan bæ þá hættu menn snarlega og eru enn í fýlu út í klósettið! Svo foreldrarnir eru aftur hálf ráðalaus með klósettþjálfunina...

miðvikudagur, mars 22, 2006

Stubbur klipptur!

Litli lubbalínus var tekinn og klipptur á mánudaginn. Þetta gekk ekki lengur, barnið var orðið svo loðið. Í hvert sinn sem ég horfði á lubbann á honum hugsaði ég, nú þarf ég að fara að klippa hann!!!! Nema hvað, klippingin varð að gerast fyrir þriðjudag, því þá kom ljósmyndari á crèchið og tók myndir af öllu liðinu. Þannig að þegar við Kjartan komum heim á mánudaginn, voru skærin dregin fram og barnið klippt. Hann að vísu skældi næstum allan tíman þrátt fyrir að mamman mútaði honum með kexi og djús. Hann er ekki mikið fyrir klippingar! Hatar allt þetta hár sem hrynur út um allt og situr fast á honum. Svo toppaði mamman allt saman með því að ná í ryksuguna og ryksuga allt upp. Litlir drengir eru nefnilega ekkert hrifnir af heimilistækjum sem heyrist hátt í. Svo mamman skuldaði honum stóran knús, kúr og hnoð á sófanum, lestur bóka og gláp á Bangsímon. En þegar allt var búið og mamman búin að hugga lítinn mann þá brostu menn sínu breiðasta!!!!

þriðjudagur, mars 21, 2006

Góðir gestir frá Lux

Það var sko fleira skemmtilegt brallað þessa helgina en að skrifa undir leigusamning. Nonni, Jóhanna og Matthildur komu í heimsókn og þótt heimsóknin væri stutt (sirka sólarhringur) var mikið líf og fjör. Luxarar mættu galvösk seinnipartinn á laugardaginn og var strax sest við að skrafa og ræða málin. Matthildur fór strax í það að kanna dótið hans Kjartans en var ekki alveg ánægð með það að strákurinn væri ekki vakandi. Svo hún var mjög kát þegar hún fékk að koma með og vekja strákinn. En svipurinn á Kjartani þegar þessi litla dama kom og strauk honum og vakti, hann vissi ekki hvað hann ætti að halda. Tók hann svo smá tíma að taka þessa gesti í sátt, en fyrr en varði voru þau skötuhjúin farin að leika sér saman. Matthildur kom líka færandi hendi með stóran afmælispakka handa Kjartani, sem hún var mjög spennt að gefa honum. Kjartan tætti auðvitað utan af pakkanum eins og fagmaður, og átti mjög erfitt með að bíða eftir því að pabbanum tækist að losa allt dótið úr kassanum. Matthildur var hins vegar svo pen að hún tók til allt bréfaruslið sem Kjartan var búinn að tæta út um allt!
Þegar búið var að gefa gestunum smá hressingu skelltum við okkur í smá bíltúr. Fórum á leikvöllinn í Cinquantenaire garðinum til að viðra litlu stubbana og leyfa gestunum að sjá eitthvað fleira en bara húsið okkar. Krökkunum fannst ekkert smá gaman að leika þarna, róla og renna og leika í völundarhúsinu. Hins vegar var alveg skítkalt úti svo það var ákveðið að hafa ferðina ekkert of langa. Svo við héldum aftur heim á leið. Krakkarnir voru á fullu að leika sér og við gestgjafarnir skelltum okkur í eldhúsið, leyfðum þreyttum gestum að hvíla sig aðeins. Krakkarnir fengu svo að borða og voru voða dugleg. Svo var þeim komið þægilega fyrir framan sjónvarpið að horfa á Bangsímon á meðan fullorðna fólkið gæddi sér á kvöldmat og rauðvíni með. Fullorðna fólkið fékk þó ekkert mikinn frið, því það var kominn galsi í litlu stubbana og þau þurftu mikið að vera að sýna sig, tæma dótakassann svo hægt væri að príla ofan í hann og svona.
Eftir að búið var að koma krílunum í rúmið drógum við fram Popppunkt og tókum eitt spil. Það þarf svo sem ekkert að segja ykkur það, Hrafnkell auðvitað rúllaði okkur upp! Ég tók þá ákvörðun að fara að læra meira um íslenska tónlist, þá vonandi get ég einhvern tíman keppt við drenginn!!!! Fullorðna fólkið var nú ekkert síður lúið en litlu stubbarnir svo það var farið snemma í rúmið (ef 1 telst snemma!!!).

Á sunnudeginum voru pabbarnir svo sætir að vakna með stubbunum og fara með þá niður, svo mömmurnar fengu að sofa aðeins lengur. Svo skelltu þeir sér út í garð að leika með krakkana, róla og renna og brumma um á jeppanum hans Kjartans. Svaka fjör! Það voru ánægðir en kaldir litlir stubbar sem komu inn úr garðinum.
Þegar mömmurnar voru komnar á ról var ákveðið að skella sér í aðra túristaferð og skoða Atomium en það er nýbúið að opna það aftur eftir endurbætur. Eftir smá villing fundum við loksins Atómið og tókum nokkrar myndir. Hins vegar var löng röð til að komast inn í það og skoða svo við hættum við, enda var frekar kalt úti og við með 2 óþolinmóða 2ja ára stubba. Svo það var blásið til undanhalds og ákveðið að fara í hádegismat á La Barchetta (sem ég held að allir gestir okkar hingað til séu farnir að kannast við). Þar sátum við lengi og gæddum okkur á pasta, pizzum og steik. Allir fengu svo desert og voru stubbarnir ekkert smá ánægðir með ísinn sinn. Kjartan og Matthildur voru algjörir englar og skemmtu sér konunglega. Sátu að vísu ekkert kyrr allan tímann, voru á þvælingi um allan staðinn og heilluðu aðra gesti og þjónana upp úr skónum. Eftir hádegismatinn var svo kominn tími á kveðjustund og gestirnir okkar héldu aftur heim á leið til Lúx!!!! Stutt gaman en skemmtilegt, og gott að sjá þau öll aftur. Það er víst að við gerum þetta fljótt aftur!

mánudagur, mars 20, 2006

Nýtt hús!

Við erum búin að vera ofuröflug síðustu tvær helgar, tókum síðustu helgi í að finna okkur nýtt hús og núna á laugardaginn skrifuðum við undir leigusamninginn! Ójá, hlutirnir gerast hratt!

Við ákváðum núna eftir áramótin að fara í það að finna okkur nýtt hús, bæði er þetta sem við erum í of stórt fyrir okkur og við vildum komast nær bænum og vinnunni hans Hrafnkels. Sögðum upp húsinu okkar frá og með 1. mars og vorum búin að gera okkur gott action-plan fyrir það að finna nýtt hús. Bjuggumst auðvitað við því að það tæki nú sinn tíma. Vorum búin að fara og skoða sirka 3 hús sem ekki heilluðu okkur. ´

Á fimmtudaginn fyrir rúmri viku áttum við svo stefnumót við einn fasteignasala til að fara og skoða nokkur hús. Heimsóknin gekk nú heldur brösulega, fyrst seinkaði okkur á staðinn þar sem við áttum að hittast, svo var hún með voða vesen yfir því að við vildum ekki koma með í hennar bíl (fannst of erfitt að vera á 2 bílum - sem var svo reyndar rétt) og allt mögulegt annað kom upp á. Svo mætti eigandinn að fyrsta húsinu sem átti að skoða ekki á svæðið. Þar að auki var Kjartan með í för og í húsi nr. 2 varð hann alveg óður ef hann fékk ekki að valsa um og príla í stiganum. Kjartan endaði svo á því að brjóta risastóran spegil í því húsi en þá gáfumst við upp. Fasteignasalinn var sem betur fer svo næs að bjóða okkur að hitta sig bara á laugardeginum til að skoða hús.

Á laugardeginum var Steina svo sæt að taka Kjartan, svo hann fór þangað að leika við Hönnu og Dísu á meðan við skoðuðum 4 hús. Og þrátt fyrir mótmæli okkar að vilja ekki skoða hús á þessum ákveðna stað (vorum búin að setja okkur smá landamæri á hvar við vildum búa) fór fasteignasalinn samt með okkur þangað. Sem betur fer, því við heilluðumst svo að húsinu og leigusölunum að á leiðinni aftur á fasteignasöluna vorum við búin að ákveða okkur að gera tilboð. Og sem betur fer samþykktu leigusalarnir það, svo núna á laugardaginn fórum við aftur í nýja húsið og skrifuðum undir leigusamning! Svona geta hlutirnir gerst hratt. Svo við erum að flytja í lok maí.... og ef þið vitið um einhvern sem vantar stórt og gott hús við Stockel þá er okkar á lausu!

föstudagur, mars 17, 2006

Carnaval á crèchinu

Isabelle setur reglulega inn myndir af því sem er að gerast á crèchinu á myndasíðuna þeirra (Sorrí, læst albúm og ég má ekki gefa út aðgangsorðið). Ég fékk lánaðar nokkrar myndir frá Carnavalinu um daginn og skelli þeim hingað inn. Sú fyrsta er af öllum stóru-krakka hópnum, eflaust að syngja fyrir framan myndavélina. Þá ein af sorgmædda sjóræningjanum Kjartani og sú síðasta er af öllum hópnum sem er á crèchinu og fóstrunum. Á þeirri mynd rétt glittir í Kjartan alveg aftast, þar sem hann situr við hliðina á Chevrije, uppáhalds fóstrunni sinni þessa dagana!


sunnudagur, mars 12, 2006

Rigning, svo kuldi og fuglaflensa!

Hér er kalt kalt kalt! Það var aftur orðið hlýtt eftir að við komum frá Róm, var hellirigning og tveggja stafa tölur á hitamælinum. Maður lét sig hafa rigninguna af því að hitinn hækkaði! Og þvílíka gleðin sem braust út innra með manni, nú er vorið að koma! Nema hvað, auðvitað voru veðurguðirnir að stríða okkur, því nú um helgina hætti að rigna og í staðin komið frost! Brrr... Við Kjartan vorum nú samt hörkutól og fórum út í garð að leika okkur í frostinu og sólinni.
Og frostið hefur bara haldið áfram...

Annars er fuglaflensu umræðan þvílík á þessum slóðum. Ég vaknaði einmitt í morgun við fréttirnar og þá var verið að ræða ný tilfelli hér og hvar, að vísu ekkert ennþá í Belgíu. Svo hafði einhver kall skjögrast inn á spítala í fyrradag, nýkominn frá Kína og dauðlasinn. Honum var auðvitað skellt í einangrun og rannsóknir og öll þjóðin stóð á öndinni, en svo reyndist hann bara með venjulega flensu. Eflaust smitast í batteríuverksmiðjunni flugvélinni á leiðinni heim!
En í tilefni af öllu þessu þurfum við að senda sveitarfélaginu nákvæma talningu á fjölda ali-fugla sem við höldum í garðinum (ef við værum með einhverja). Maður þarf að gefa upp fjöldann á hænsnum, öndum, akurhænum og öllum þeim kvikindum sem manni gæti dottið í hug að rækta í bakgarðinum. Jafnframt þarf að gefa upp ef þú ert með emúa, strúta eða annað álíka fiðurfé í bakgarðinum! Já, ég er með 2 emúa í bakgarðinum!!!!
Þessi fuglaflensu umræða hefur auðvitað haft þau áhrif að sala á fuglakjöti hefur snarlækkað. Held að það sé lítið að gera hjá fuglaslátraranum okkar þessa dagana. Og það skal alveg viðurkennt að við erum ekkert betri, einhvern veginn langar mann lítið í kjúkling! Svo allskyns annað kjöt og fiskur er komið inn á matseðilinn hér! En því miður er spaghetti carbonara dottið út, því ekki er mælt með neyslu á hráum eggjum. Sniff sniff! En við hlýðum.

fimmtudagur, mars 09, 2006

Myndir og meiri myndir!

Ég var að setja inn myndir frá Rómarferðinni, nokkrar frá því í lok febrúar og svo sjóræningjamyndir frá því í morgun!

Róm 2.-7. mars

Snjór og sjóræningi

Lok febrúar

Lítill sjóræningi

Það verður líf og fjör hjá Kjartani í dag því það á að halda upp á Carnaval á crèchinu í dag. Carnaval var um daginn (á sprengidag) nema það þurfti að aflýsa öllum hátíðarhöldum á crèchinu tvisvar vegna veikinda. Lítið gaman að halda hátíð þegar meirihluti barnanna var heima með hlaupabólu og/eða rotavírus. En í dag eru loksins allir mættir aftur hressir og kátir og því skyldi haldið Carnival.

Það var því kátur Kjartan sem klæddi sig í sjóræningjabúning í morgun. Amma Sigga og Tóta móða höfðu græjað búninginn, keypt á hann röndóttan bol og röndóttar sokkabuxur, saumað mittislinda og hárklút, og reddað sjóræningjahatti, hálsfestum og sverði. Og mamman græjaði gamlar buxur svo hann yrði nú ekta Jack Sparrow!!! Kjartan var að vísu ekki alveg sáttur við alla múnderinguna. Hárklútinn neitaði hann að hafa og vildi alls ekki hálsfestarnar. Það tók hann smá tíma að samþykkja klipptar buxurnar og mittislindann en lét sig hafa það að lokum. Hatturinn var voða sport en sverðið er samt það allra flottasta! Að lokum fannst honum hann vera svo flottur að hann var í því að spegla sig áður en við fórum! Ég reyndi að ná nokkrum myndum í morgun en litli sjóræninginn var ekkert á því að sitja kyrr!!! Reyni að ná betri myndum þegar hann kemur heim aftur....

En við erum sem sagt komin heim frá Róm og lífið að komast í venjulegar skorður. Ferðasagan bíður betri tíma...

fimmtudagur, mars 02, 2006

Ciao!!!

Við erum farin til Rómar!!!

Allt klappað og klárt, föt og dót komin ofan í tösku, búið að græja afþreyingarefni fyrir Kjartan og nesti fyrir flugið. Sitjum bara og bíðum eftir leigubíl sem fer með okkur á Midi-stöðina. Þaðan verður farið með rútu til Charleroi og á ég von á því að litlum stubbi, sem þykja trukkar og rútur alveg ógurlega spennandi, finnist það mikið ævintýri. Síðan er bara beint flug frá Charleroi til Rómar!!! Jibbíííí....

Tímans í Róm ætlum við bara að njóta í botn. Slaka á saman fjölskyldan og leika okkur á götum eða í görðum Rómarborgar. Veðurspáin segir 16 stig og léttskýjað svo þetta gæti ekki verið betra! Ekkert hefur þó verið ákveðið hvernig fyrsta deginum verður eytt, við finnum eflaust út úr því í fyrramálið eftir góðan morgunverð og ljúfan kaffibolla.

Giolitti's here we come....

miðvikudagur, mars 01, 2006

Nú er frost á Flandri

Hér er bara allt á kafi í snjó!!! Og það er fyrsti mars!
Ég var nú farin að búast við tveggja stafa hitatölum og ljúfara veðri þegar mars myndi mæta á svæðið, en nei! Hér fór bara að snjóa í gær og það var ekkert smá magn sem kyngdi niður. Og það hefur greinilega haldið áfram í nótt því það er allt þakið snjó, algjört vetrarríki. Við Kjartan létum samt okkur hafa það að þramma niður á crèche og það í kerru sem hefur engan séríslenskan aukabúnað eins og snjódekk. Það var örlítið erfiðara en venjulega að ýta kerrunni á undan sér, sumstaðar hreinlega dró ég kerruna á eftir mér Kjartani til mikillar skemmtunar!
Svona er lífið á tímum gróðurhúsaáhrifa og fleiri nútímakvilla. Janúar hefur sjaldan verið kaldari í Belgíu og á ég von á að svipað kuldamet verði sett í febrúar, því hér hefur ríkt Síberíukuldi síðustu tvo mánuði (fyrir utan sirka 2 daga!!!). Ég þakka fyrir fínu lopapeysuna mína sem amma mín prjónaði handa mér á hverjum degi, því ekki þýðir að kynda húsið meira, eins óeinangrað og það er. Svo það er lopapeysan og ullarsokkar sem blíva, jafnvel tvennar peysur köldustu dagana. En vonandi bætir mars úr þessu ástandi, mig er farið að langa í vor....
Hugsið ykkur bara, fyrir 3 árum síðan voru komnar 2ja stafa hitatölur á þessum árstíma og fólk farið að sitja út í garði að snæða kvöldmatinn... Þetta var auðvitað hitabylgjuárið mikla 2003. Síðan við fluttum hefur veðrið að vísu ekki verið svo frækilegt, en af gömlum myndum má sjá að það var alveg leikið úti á svölum í mars! Svo ég krossa fingur.
Sem betur fer tökum við núna smá forskot á sæluna. Róm ætlar að ylja okkur aðeins, veðurspáin bíður 13-16 stig og ég get ekki beðið!!! Samt vissara að taka regnhlífina með... Róm, eftir aðeins einn dag... en fyrst þarf ég víst að klára prófin mín!!!